Jörð - 01.06.1948, Síða 46
236
JÖRÐ
sósíalistískar né kapitalistískar í sjálfu sér. Hann skýrir einnig
rajög ýtarlega, að þjóðnýting og skipulagning atvinnuvega og
framkvæmda geti alveg eins leitt til Fasisma eins og Sósíalisma
— og hvort verður, fari algerlega eftir stjórnmálalegu og sið-
rænu viðhorfi þeirra, sem hafi ríkisvaldið á hendi. Þá sýnir
Koestler það ljóslega með dænjum, að stefna Ráðstjórnarríkj-
anna í utanríkismálum sé með öllu óverjandi frá sjónarmiði
Sósíalismans. Það, sem þar ráði, sé gamla heimsveldishug-mynd-
in frá keisaratímanum — enda minningu hvers þess harðstjóra
og ofbeldisseggs hossað, sem hafi að einhverju leyti stutt að
landaaukningu Rússaveldis eða hafi styrkt það svo, að það væri
á eftir betur fært um það en áður að bæla undir sig önnur ríki
eða gera þau sér háð.
Niðurstaðan af rannsókninni kemur fram í eftirfarandi
ályktun:
„í Ráðstjórnarríkjunum ræður í atvinnumálum og fjármál-
um ríkisauðvald, sem allsvaldandi, og í stjórnmálum algert ein-
ræði. Ráðstjórnar-Rússland er framfaraland á sviði atvinnulífs
og opinberra framkvæmda, en á öllurn öðrum sviðum ríkir
afturhald. Stjórnmálalega, menningarlega og í afstöðu hinna
ráðandi gagnvart þeim, sem yfir er ráðið, er það afturhaldssamt
í samanburði við flest af þeim löndum auðvaldsskipulagsins,
þar sem er lýðræði. Það fylgir í utanríkismálum landaukninga-
stefnu, sem endurspeglar hin gömlu markmið keisaraveldisins
rússneska, þó að nú séu aðferðirnar til þess að ná settu marki
aðrar en áður. Fyrir verkalýðinn og öfl framvindunnar í öðrum
löndum heims er Rússland ekki meira virði en hvert annað
stórveldi. Afturhaldinu þarf ekki að standa af því neinn ótti,
og það gefur ekki framvindu hinna vinstrisinnuðu neitt hvetj-
andi fordæmi. Afstaða þess gagnvart jafnt liægi'i- sem vinstri-
flokkum annarra landa mótast algerlega af því, hvað þessa eða
liina stundina hentar valdastefnu þess. Það mun framvegis eins
og hingð til svíkja bandamenn sína, þegar því býður svo við að
horfa og eftir því, sem þessa eða hina stundina er hagsnninum
þess nærstæðast — alveg án tillits til þess, hvaða stjórnmálalegt
kerfi bandamennirnir aðhyllast."