Jörð - 01.06.1948, Page 74
264
JÖRÐ
kenningar Kommúnismans, eru felldir úrskurðir, er varða ekki
einungis framtíð Rússlands, heldur og alls lieimsins.#)
ASLAGINIJ klukkan ellefu á hverjum degi liefst vinnudag-
ur Stjórnmálaráðsins.Meðlimimir virðast ekki vera sérlega
árrisulir, en þess ber að gæta, að þeir hafa ef til vill setið við
vinnuborðið til Td. 4—5 að morgni. Þeir koma á skrifstofurnar
nokkrum mínútum fyrir ellefu, en þá hefur duglegt starfslið
fyrir löngu ræstað og þvegið allt undir ströngu eftirliti leyni-
lögreglunnar. Klirkkan hálftíu athuga hinir voLdugu skrifstofu-
stjórar, að allt sé í lagi og hver hlutur á sínum stað, eins og yfir-
boðarar þeirra krefjast.
Dagskráin hefst með því, að gefnar eru skriflegar og munn-
legar skýrslur og rætt um málefnin. Unnið er viðstöðulaust til
klukkan fimm, en þá taka meðlimirnir sér hlé til að snæða mið-
degisverð og hvíla sig til klukkan tíu að kveldi. Klukkan tíu eru
allir aftur setztir við skrifborð sín og enn er unnið án afláts
undir morgunsár. Ef meðlimirnir fara ekki heim til bústaða
sinna utan borgarinnar, dveljast þeir um nóttina í íbúðum sín-
um í Kreml. Þeir eru eina fólkið í Rússlandi, sem ekkert hafa
af húsnæðisskorti að segja. Auk íbúðanna í Kreml og hinna áð-
urnefndu „Dachas“, hafa þeir allir umráð yfir stórum sumarbú-
stöðum í Kaukasus.
Eins og geta má nærri hefur ábyrgðin, þessi gífurlegu vinnu-
brögð og óeðlilegu lifnaðarhættir rist rúnir sinar á andlit þeirra
*) Þessi salur og vinnustofa Stalins eru einu salirnir í opinberum byggiug11111
í Rússlandi, sem ekki cru skreyttir mynd at marskálkinum.