Hugur - 01.01.1988, Page 39

Hugur - 01.01.1988, Page 39
HUGUR ATLI HARÐARSON Þeir telja að tal um skugga geti tjáð viss sannindi en að þessi sannindi séu betur tjáð með öðm móti. Þeir sem halda því fram að ekki séu til hverafuglar em aftur á móti að halda því fram að trú á hverafugla sé hjátrú. Þeir em ekki að segja að það sem fylgismenn hverafugla hafa reynt að segja sé betur tjáð með því að gefa öðrum hlutum einkunnir. Þeir vilja útrýma hverafuglum bæði úr nafnlið og sagnlið og þeir telja að þeir sem tala um hverafugla séu með tali sínu að tjá tóm ósannindi. III Nú held ég að það sé lítið eða ekkert vit í að segja að tal um skugga (eða hvað annað) tjái einhver sannindi en skuggar séu samt ekki til. Með öðmm orðum þá held ég að lítið vit sé í þeim skoðunum sem ég hef tilgreint sem dæmi um skoðanir vemfræðinga (eins og til dæmis þeirri að ekki séu til skuggar). En þó ég haldi að það sé lítið vit í skoðunum af þessu tagi, þá em flestar deilur verufræðinga um tilveru skugga, skyn- reynda, atburða, tíma, rúms, yrðinga og eiginleika o.s.frv. af svipuðu tagi og deilan um tilvist skugga (og þar með næsta ó- merkilegar að mínu viti). Þótt þeir séu ósammála um tilvem þessara hluta, þá líta þeir ekki svo á að andstæðingar sínir séu hjátrúarfullir eða séu að verja skoðanir sem em alrangar á sama hátt og sú skoðun að til séu hverafuglar væntanlega er. Frá þessu em þó undantekningar. Það eru til merkilegar og mikilvægar deilur um vemfræðileg efni innan nútímaheim- speki. Ein þeirra er auðvitað deilan um það hvort guð sé til. Þeir heimspekingar sem telja að guð sé ekki til líta, að ég held, flestir svo á að tal um guð sé ekki villandi leið til þess að tjá einhver sannindi, heldur tjái það tóm ósannindi. Aðra undantekningu má tína til. En til hennar teljast heimspekingar (líkt og Richard Rorty og W.v.O. Quine11) sem kalla sig „eliminitive materialists“. (Ég veit ekki til þess að til sé íslenskt heiti á þessarri stefnu.) Þeir telja að tal um sálar- 11 Sjá t.d. Richard Rorty: Philosophy and The Mirror of Nature, (Princeton University Press: Princeton, 1980), kafli II og W.v.O. Quine: „Mental Entities“ í The Ways of Paradox and Other Essays, (Random House: London, 1966) og Wordand Object, grein 54. 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.