Hugur - 01.01.1988, Qupperneq 39
HUGUR
ATLI HARÐARSON
Þeir telja að tal um skugga geti tjáð viss sannindi en að þessi
sannindi séu betur tjáð með öðm móti.
Þeir sem halda því fram að ekki séu til hverafuglar em aftur
á móti að halda því fram að trú á hverafugla sé hjátrú. Þeir em
ekki að segja að það sem fylgismenn hverafugla hafa reynt að
segja sé betur tjáð með því að gefa öðrum hlutum einkunnir.
Þeir vilja útrýma hverafuglum bæði úr nafnlið og sagnlið og
þeir telja að þeir sem tala um hverafugla séu með tali sínu að tjá
tóm ósannindi.
III
Nú held ég að það sé lítið eða ekkert vit í að segja að tal um
skugga (eða hvað annað) tjái einhver sannindi en skuggar séu
samt ekki til. Með öðmm orðum þá held ég að lítið vit sé í þeim
skoðunum sem ég hef tilgreint sem dæmi um skoðanir
vemfræðinga (eins og til dæmis þeirri að ekki séu til skuggar).
En þó ég haldi að það sé lítið vit í skoðunum af þessu tagi, þá
em flestar deilur verufræðinga um tilveru skugga, skyn-
reynda, atburða, tíma, rúms, yrðinga og eiginleika o.s.frv. af
svipuðu tagi og deilan um tilvist skugga (og þar með næsta ó-
merkilegar að mínu viti). Þótt þeir séu ósammála um tilvem
þessara hluta, þá líta þeir ekki svo á að andstæðingar sínir séu
hjátrúarfullir eða séu að verja skoðanir sem em alrangar á
sama hátt og sú skoðun að til séu hverafuglar væntanlega er.
Frá þessu em þó undantekningar. Það eru til merkilegar og
mikilvægar deilur um vemfræðileg efni innan nútímaheim-
speki. Ein þeirra er auðvitað deilan um það hvort guð sé til.
Þeir heimspekingar sem telja að guð sé ekki til líta, að ég held,
flestir svo á að tal um guð sé ekki villandi leið til þess að tjá
einhver sannindi, heldur tjái það tóm ósannindi.
Aðra undantekningu má tína til. En til hennar teljast
heimspekingar (líkt og Richard Rorty og W.v.O. Quine11) sem
kalla sig „eliminitive materialists“. (Ég veit ekki til þess að til
sé íslenskt heiti á þessarri stefnu.) Þeir telja að tal um sálar-
11 Sjá t.d. Richard Rorty: Philosophy and The Mirror of Nature,
(Princeton University Press: Princeton, 1980), kafli II og W.v.O.
Quine: „Mental Entities“ í The Ways of Paradox and Other Essays,
(Random House: London, 1966) og Wordand Object, grein 54.
37