Hugur - 01.01.1988, Page 64
SIÐFRÆÐIN OG MANNLÍFIÐ
HUGUR
veruleika. Það sem skilur Marx frá hefðinni í þessu tilliti er sú
áhersla sem hann leggur á tilteknar sögulegar og félagslegar
aðstæður sem nauðsynleg skilyrði þess að manneskjan komist
til þroska. Nánar tiltekið leggur Marx megináherslu á hinn
efnahagslega grunntón þessarar sögu vegna þess að lífsform
manna markist af framleiðsluháttunum hverju sinni. Fyrsta
skrefið í átt til manneskjulegs þjóðfélags er því breyting á efna-
hags- og framleiðslukerfinu. Hinar efnahagslegu andstæður
skapa beint eða óbeint öll önnur átök og ofbeldi í samskiptum
manna og þegar framleiðsluháttunum hefur verið umbylt og
eignarétturinn á framleiðslutækjunum afnumimi, munu aðrar
andstæður mannlífsins leysast í kjölfarið.
Þegar þessi skilyrði hafa skapast fyrir mannlegt sjálfræði og
þar með fyrir sönnu siðferðislífi, verður því raunar engin þörf
á siðfræði lengur. Bæði hin borgaralega og hin byltingar-
sinnaða siðfræði hafa runnið sitt skeið þar eð aðstæðumar sem
þær mótuðust af eru ekki lengur fyrir hendi. öll siðfræði er
afsprengi tiltekinna þjóðfélagsaðstæðna, því hún þjónar ýmist
því hlutverki að réttlæta óréttiætið eða að hafna því í nafni
hugmynda um réttlæti sem er ekki en gæti orðið. Það er ekki
fyrr en það réttlæti er orðið að veruleika að hægt verður að tala
um lifandi siðferði, frítt við kerfistregðu siðfræðilegra hug-
mynda, því í þessu samfélagi á hugsjónin sér stað í vemleikan-
um sjálfum.
V
í hinni marxísku afstöðu til siðferðisins er meginforsendan sú
að félagslegar og efnahagslegar aðstæður séu undirstaða
mannlegs siðferðis. Það er því unnt að hugsa sér þjóð-
félagsform þar sem efnislegar aðstæður byðu fullkomnu frelsi
og jöfnuði heim og þá fyrst væri kominn grundvöllur eigin-
legs siðgæðis. Með þessa hugmynd að leiðarljósi er hægt að
gagnrýna ríkjandi ástand og finna hlutlæga viðmiðun fyrir sið-
ferðilega breytni. Þetta sjónarhom gerir mönnuin kleift að af-
hjúpa þau öfl kúgunar og ofbeldis sem eru að verki í veru-
leikanum og villa mönnum sýn á raunverulegt eðli hans. í
kjölfar þessarar hugmyndagagnrýni, sem byggir á þjóðfélags-
vísindum marxismans, ætti fólk því að losna úr fjötmm þeirrar
62