Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 14
12
Hlín
stormi, að sitjia þennan fund. — Mjer íanst jeg lítil og
smá að dirfast að tala um fjelagsmál við þessar konur,
sem höfðu þá fyrir 25 árum stofnað sýslusamband milli
hinna smærri I jelaga. — En þessar konur voru bæði
reyndar og þroskaðar í fjelagsmáiusm og því gott að fá
þeirra fylgi.
Það er að segja af rninni málaleitan, að hún 1 jekk góð-
ar undirtektir. — Jeg fór fullviss um það af fundinum, að
okkur myndi takast að siameina fjelagasamtök kvenna á
þann ihátt, sem ákveðið hafði verið.
Sigrún Blöndal liafði lofað fylgi kvenna í Múlasýsl-
um. — Herdís Jakobsdóttir var formaður Sambands sunn-
lenskra kvenna, hennar fylgi áttum við. — Bnndalag
kvenna í Reykjavík, með Steinunni Bjarnason og Ingu
Lárusdóttur í forustusætum, treystum við mæta vel. —
Við ályktuðum, að auðvelt myndi að ná sambándi við
kvenfjelög í sýslunum, þó ekki væru komin á þar kven-
fjelagasambönd.
Nefndin gaf ýtarlega skýrslu um störf sín. — Á Búnað-
arþinginu 1929 voru tillögur nefndarinnar ræddar og
samþyktar. — En aðalefni tillagnanna var þetta:
Að komið væri upp skóla fyrir þær konur, sem liefðu
húsmæðrafræðslu á hendi.
Að matreiðsla og líandavinna yrði skyldunámsgrein í
öllum barnaskólum.
Að Búnaðarfjelagið hefði fjórar umferðakenslukonur,
sitt í hverjum landsljórðungi, sem hefðu húsmæðra-
fræðslu á hendi.
Að húsmæðraskólum yrði komið á stofn í öllum lands-
fjórðungum, og að kona hefði eftirlit með allri hús-
mæðrafræðslu í landinu.
Búnaðarþingið 1929 ræddi þessar tiIlögnr og sam-
þykti þær.
:Þi')kk sje þeim góðu mönnum, sem svo vél skildu þarfir
og nauðsyn þjóðarinnar í þessum málum!
|eg skal nú ekki lengja mikið þessa frásögn.