Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 20
18
Hlín
næm sem hún var, mun hún hafa tileinkað sér ítarlega
þá fræðslu, sem skólinn liafði yfirleitt að bjóða.
Fanney hefur ritað grein, „Æskudagar á Laugalandi“,
sem birt er í hinu fróðlega minningarriti skólans, er son-
ur hennar, síra Benjamín Kristjánsson, sarndi og bjó til
prentunar árið 1953. — Greinin er prýðisvel rituð. — Er
þar glöggan fróðleik að fá um gamla skólaluisið, starfs-
og lifnaðarhætti þar, kennslukonur og námsmeyjar. — Frá
hverri línu andar kærleik til manna og mennta.
Fanney var ágætlega læs á Norðurlanda-málin þrjú, og
las jafnan bækur og blöð á þeim málum. — Rithönd henn-
ar var vandvirknisleg og áferðarfalleg. — Sýnt var henni
um verklega hluti. Bjó hún til ágætan mat og var hög á
hvers konar hannyrðir. — Smekkvísi hennar á þær var
næm, og gat hún engu unað, er henni þætti Ijótt eða van-
unnið.
En til hannyrða, orgelleiks og annarra slíkra fegurðar-
og gleðigjafa, gaf lífið henni lítið tóm. Hún var raunar
enn á æskuskeiði, er lífsstarfið mikla hófst. ,
Eiginmaður liennar, sem varð, Kristján Helgi Benja-
mínsson, frá Ytri-Tjörnum, hafði verið ráðsmaður við
Laugalandsskóla og mæðgunum þar samtíða. — Vorið
1896 vistréðust þær til hans að Þröm í Kaupangssveit. —
Með honum fluttust þær tveim árum síðar að Rútsstöð-
um. Þá um sumarið, 3. júlí 1898, voru þau Kristján og
Fanney gefin saman í Munkaþverárkirkju, liann 31 árs,
hún 17 ára. Ári síðar fengu þau Ytri-Tjarnir til ábúðar.
Þar er Kristján fæddur, og þar hafði faðir hans búið í
35 ár. Og þar festu ungu hjónin rætur og bjuggu og gerðu
garðinn frægan í 45 ár samfelt, alt til ársins '1944, er
Baldur sonur Jreirra tók við bústjórn. — Var þá jörðin
fyrir löngu síðan orðin eign þeirra og umbæturnar á
henni orðnar stórfelldar.
Fanney og Kristján eignuðust tólf börn. Öll eru Jrau á
lífi. — Þau eru þessi: