Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 110
108
Hlin
sína löngu æfi fyrir endurreisn handavinnunnar, er hann
áleit að hefði mikla uppeldislega þýðingu. Honum hefur
orðið að trú sinni. — Margir merkir menn, karlar og kon-
ur, hafa barist fyrir þessu máli, og þó minná hafi borið á
Dönum þegar um sölu á handiðnaði hefur verið að ræða,
móts við hinar Norðurlandaþjóðirnar, þá hiafa þeir hald-
ið sínu striki með sína skóla, námsskeið og sýningar. — í
því landi eru nú hvorki meira nje minna en 605 heimilis-
iðnaðarfjelög og fjölmargir skólar.
Það er áberandi, hve margir karlmenn eru þar framar-
lega í fiokki og liafa æfinlega verið. — Þátttakendur í
námi voru, samkvæmt síðustu skýrslum, 35 þúsundir á
árinu, eldri og yngri. — Deildir eru í öllum ömtum Dan-
• rnerkur. — Kenslan er ókeypis, en efni greiða neinendur
að sjálfsögðu. — Kensla er veitt í smíðum, körfugerð,
bókbandi, málmsmíði, burstagerð, vefnaði, saumaskap,
hannyrðum, prjónaskap o. fi. — Ríkisstyrkur er 50 þús-
und krónur árlega.
Fjelagið gefur út blað: „Dansk husflidstidende" 76.
árg. 1956 (upplag 4500). Ritstjóri er formaður fjelagsins:
Svend Möller, yfirbyggingameistari Kaupmannahafnar.
Óþreytandi áhugamaður. — Hinn merkasti maður.
Kennaraskóli, sem fjelagið hefur komið sjer upp, er
starfandi á Fjóni: Kerteminde. — Veitir hann kennara-
próf í hinum ýmsu greinum heimilisiðnaðarins.
Þingið í Finnlandi.
Samband íslenskra heimilisiðnaðarfjelaga er ein deild-
in í samvinnu Norðurlandaþjóðanna í heimilisiðnaði. —
l'jóðirnar hala þing og sýningar til skiftis í löndunum 3.
Iivert ár (1948 hjer á landi). — Það Sambandið, sem hefur
þingið hjá sjer, gefur út rit, sem hefur inni að halda upp-
lýsingar frá hverju landinu um sig, erindi myndir o. II.