Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 95
Hlín
93
atriSi að ræða, skulu þær snúa scr til forstöðukonu heimilishjálpar-
innar.
2. gr.
Hjálparstúlku ber:
a) Að rækja störf, sem venjulega hvíla á húsmóðurinni, s. s. um-
sjón og eftirlit með börnum, innkaup matvæla og matreiðslu,
nauðsynlegar viðgerðir á fatnaði, daglega hreingerningu og þvotta,
en ekki stórþvott oftar en einu sinni hálfsmánaðarlega.
b) Annast sjúklinga á lieimilinu eftir fyrirmælum læknis eða
ljósmóður.
c.) Gera það sem í hennar valdi stendur til þess að jn ifnaðar og
reglusemi sé gætt á heimilinu.
d) Vera umhyggjusöm og athugul um það, að dagleg útgjöld
íþyngi ekki heimilinu fram yfir Jrað, sem venjulegt er, og gera dag-
lega eða vikulega grein fyrir útgjöldum vegna heimilisins.
e) Hjálparstúlku er skylt að skila vinnuskýrslu til forstöðukonu,
áritaðri af þeim, sem aðstoð hefur fengið, eigi sjaldnar en tvisvar
í mánuði.
3. gr.
Vinnutími hjálparstúikna er 48 klst. á viku að meðaltali. Matar-
og hvíldartími er ekki innifalinn í jressum tíma. — Vinna hefst kl.
9 f. h. og má standa tii kl. 7 að kvöldi.
4. gr.
Hjálparstúlka á að fá frítt fæði á heimili því, sem hún vinnur á.
Ennfremur strætisvagnagjöld. — Ekki má hjálparstúlka taka við
greiðslu á heimili fyrir vinnu, sem unnin er á venjulegum vinnu-
tíma.
5. gr.
I>að, sem hjálparstúlka verður áskynja unt í starfi, skal hún fara
nteð sem algert trúnaðarmál, og getur það varðað fyrirvaralausri
uppsögn á starfi, ef út af er brugðið.
FRUMVARP
nií samþykkt um heimilishjálp i Reykjavik.
1. gr.
Stjórn Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar fer með stjórn heim-
ilishjálpar í Reykjavík. — Dagleg umsjón með framkvæmdum heim-
ilishjálparinnar í Reykjavík er í höndum konu með þekkingu á
heimilisstörfum, er borgarstjóri skipar. — Hún á rétt á að sitja
fund í stjórn ráðningarstofunnar, þegar rædd eru mál, sem varða
heimilishjálpina, og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.