Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 84
82
Hlin
komnir í því að breyta og bæta fangelsi sín. Fyrir 3 árum
rifu þeir niður 400 manna fangelsi, sem var á Langholm-
en, í sjálfri höfuðborginni Stokkhólmi, og afhentu lóðina
bænum undir skemtistað (Tivoli), en föngunum skiftu
þeir niður á 25 staði, 16 á hvern stað, víðsvegar um alla
Svíþjóð, alt sunnan frá Skáni og norður í Dali. — Þar
voru á jörðum, sem ekki voru á alfaraleið, sett upp op-
in vinnuhæli, þar sem hvorki eru járnslár fyrir gluggum
eða lásar á Ihurðum, undir stjórn duglegs bónda og
tveggja verkstjóra. — Þarna vinna ,nú piltarnir að jarð-
yrkju og öðrum búverkum, alla daga, og una sjer svo vel,
að þeir strjúka varla þrátt fyrir frelsið. — Þrír af Itverju
liundraði liafa strokið, en 2 komið aftur af sjálfsdáðum,
— aðeins 1 af hundraði hafa hælin orðið að láta lögre<d-
una í næstu bæjum færa sjer.
Jeg tel mjög æskilegt að slíku hæli verði komið upp
hjer á landi fyrir unga afbrotamenn, þar sem þeir væru
látnir vinna 'holla vinnu undir beru lofti, undir hand-
leiðslu góðra manna, og gætu öðlast þar bæði andlegan
og líkamlegan þroska og styrk.
Það segir sig sjálft, að starfsemi okkar hefði ekki náð
þeim árangri, sem jég þegar thef lýst, ef hún hefði ekki
notið styrks og velvildar úr mörgum áttum. — jeg léyfi
mjer þó einkanlega að geta þess liversu dómsmálastjórn
landsins hefur mætt starfinu með mikilli vinsemd og
greitt fyrir því á allan hátt. — iFJnkanlegia íhefur það kom-
ið til afskifta þriggja aðila: Sakadómarans í Reykjavík,
Valdimars Stefánssonar, skrifstofustjórans í dómsmála-
ráðuneytinu, Gústafs Á. Jónassonar, og síðast en ekki
síst dómsmálaráðherrans, Bjarna Benediktssonar. — Það
hefur verið starfsemi vorri ómetanlegt happ að eiga sam-
skifti við þessa menn um mál fanganna. Þeir hafa ávalt
Jitið á þau með svo miklu viti, sanngirni og mannúð. —