Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 103
Hlin
101
Skýrsla um starfsemi mína í þarfir heimilis-
iðnaðarins árið 1932.*
Send Alþingi. Halldóra Bjarnadóttir.
1. íslenska vikan. Jeg vann í nefnd, sem undirbjó og
starfaði að „íslensku vikunni" í Reykjavík 3,—10. apríl
1932 og sá um sýningu og sölu á íheimilisiðnaði, meðan á
vikunni stóð.##)
2. Utvarpserindi: Heimavinna.
3. Vefnaðarbókin. Unnið að vefnaðarbökinni, sem
fylgir „Hlín“ sem ókeypis fyjgiriti og sem á að fylgja
benni næstu 4—5 árin.
Jeg lief leitað upplýsinga hjá rúmum 20 mönnum í
Reykjavík og nágrenni um aðferðir vefnaðar, áhöld,
verkfæri, nöfn.
4. Barnakennurum víðsvegar um land útvegað efni til
handavinnu, sendar fyrirmyndir, gefnar upplýsingar,
svarað fyrirspurnum.
5. Reynt að hafa áhrif á bæði barnakennara og hús-
mæðraskólakennara, að hafa ákveðið kerfi fyrir nemend-
ur sína. — Vinna þá muni, sem þarflegir eru, og sem veita
mestan lærdóm.
6. Svarað fyrirspurnum almennings í hundraðatali ár
#) Jeg hef veriS leiðbeinandi almennings í heimilisiðnaðar-
málum í landinu síðan 1924, og notið nokkurrar þókmmar frá
Alþingi fyrir það stanf. — Jeg hef því árlega sent skýrslu um
störfin til Alþingis.
Birti hjer til gamans eina þessa skýrslu.
**) „Vikan“ varð vinsæl, og þó nokkuð um hana rætt og
ritað. — Margir ágætir menn lögðu henni lið. — Þó hlegið væri
að henni í græskulausu gamni, þá var það betra en þegja hana
í hel.
Það var kreppa í landinu þessi árin, og „Vikan'1 hófst einmitt,
þegar harðna tók á dalnum um gjaldeyri fyrir útlendu vöruna.