Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 106
104
Hlin
Tvist, lit af ýmsri gerð, vefjarskeiðar, álún til sútunar,
eitursóda til sápugerðár, kamba til tóvinnu o. s. frv.
Kaupfjelag Eyfirðinga ihefur bæði rnikið og vel unnið
að 'tóskaparmálunum með því að eggja menn til sölu-
framleiðslu og selja varninginn.
Um „íslensku vikuna á Akureyri“ og franr á vorið
seldi K. E. A. fyrir liátt á 2. þúsund krónur prjónavarn-
ing fyrir fjelagsmenn.
11. Unnið að því að fá gerð ýms handavinnuverk-
færi í landinu, t. d. vefstóla, í stað þess að sækja það til
útlanda.
Utvegaðar spunavjelar, svo nú er spunavjel í nær því
hverjum hreppi á landinu og í suinum fleiri en ein.
12. Unnið að iitkomu og útsendingu „Hlínar“. — Það
er skoðun mín, að „Hlín“ vinni heimilisiðnaðinum ekki
svo lítið gagn, 'hún fer víða (6000 eintök), og Iiana geta
menn athugað í næði að vetrinum og þær leiðbeiningar,
sem hún flytur.
13. Heimilisiðnaðarfjelag í Winnipeg. — feg hef að-
stoðað nýstofnað fjelag þar með því að útvega efni, upp-
drætti og fleira.
14. Jeg stend í sambandi við öll Norðurlönd um heim-
ilisiðnað, skifti við löndin blöðum, útvega þeim upplýs-
ingar hjeðan, hef útvegað band til útsaums, skrifað í blöð
þar um íslenska vinnu eftir óskum blaðanna o. s. frv.
15. Unnið að því að senda út og undirbúa skýrslugerð
fyrir heimilisiðnað. Skýrslurnar á að senda út um landið
og fá frjettir um hvað unnið er, æskilegt að geta verð-
launað besta og mesta vinnu. — Kvenfjelagasamband ís-
lands hefur í huga að stuðla að því.
16. Skorað á alla sveitaskóla og sveitakennara, sem jeg
hef getað náð til, að hafa sýningar á heimavinnu barna á
vorprófi. hað kostar ekkert, en hefði áhrif í því skyni að
auka áhuga barna og heimila fyrir heimavinnu.
17. Undirbúin „íslenska vikan“ 1933.
18. Komið til leiðar að allir húsmæðraskólarnir hafa