Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 96
94
Hlin
.2. gr.
Hlutverk heimilishjálparinnar er að veita hjálp á lieimilum, þegar
sannað er með vottorði læknis, Ijósmóður eða á annan hátt, sem
forstöðukona heimilishjálparinnar metur gildan, að hjálpar sje
þörf um stundarsakir, vegna sjúkdóma, barnsburðar, slysa, dauðs-
falla eða af öðrum ástæðum. — Hjálpin skal áð jafnaði ekki veitt
um lengri tíma í senn en 14 daga.
3. gr.
Iíeimilishjálpin skal jafnan leitast við að hafa til taks nægilega
margar konur til heimilishjálþár. — Forstöðukonunni ber að ganga
örugglega úr skugga um, að konur þær, sem heimilishjálp stunda
á vegum stofnunarinnar, séu hæfar til starfsins, haf^t. d. lokið til-
skildu námskeiði cða sýnt hæfni í verki og séu ekki haldnar smit-
andi sjúkdómum. Skulu þær leggja fram vottorð heilsuverndar-
stiiðvar eða trúnaðarlæknis Jiar að lútandi. — Ef stjórn heimilis-
lijálparinnar æskir þess, skal Húsmæðraskóli Reykjavíkur halda
uppi kennslu til leiðbeiningar kontim, sem taka vilja að sér að
stunda heimilishjálp samkvæmt rcglugerð þessari, ef húsrúm skólans
og aðrar aðstæður leyfa. — Um launakjör og hlunnindi starfsfólks
heimilishjálparinnar fer eftir ákvörðun bæjarráðs.
4. gr.
Bæjarsjóður Reykjvíkur bcr ekki ijárhagslega ábyrgð á tjóni, sem
konur þær, er vinna á vegum heimilishjálparinnár, kunna að valda
við störf sin.
5. gr.
Stjórn heimilisbjálparinnar ákveður, hvert form skuli vera á um-
sóknum um heimilishjálp. — Bæjarráð getur veitt eftirgjöf á
greiðslu fyrir heimilishjálp að nokkru eða öllu leyti, að fengnum til-
lögum forstöðukonu heimilishjálparinnar.
6. gr.
Fyrir heimilishjálp skal greitt eftir gjaldskrá, er bæjarstjórn set-
ur að fengnum tillögum stjórnar heimilishjálparinnar og ráðherra
staðfestir. — Stjórn heimilishjálparinnar setur nánari reglur um
greiðslur, innheimtu eða annað, er hún telur máli skipta í Jiessu
efni.
7. gr.
Ráðningarstofa Reykjavíkurbæjar veitir heimilishjálpinni nauð-
synlega fyrirgreiðslu um húsnæði og afnot áhakla, svo og skrifstofu-
störf.