Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 48
síðan. Veggirnir standa sig
vel, enda prýðilega vel gerð-
ir. Jón var framúrskarandi
vandvirknr og heimtaði það
sama af öðrum. Fyrir gat
það komið, að hann ljet
taka upp að morgni, það
sem gert hafði verið að
kvöldi, að honum fjarver-
andi, ef honum líkaði ekki
handbragðið. Þakið á bæn-
um er að sjálfsögðu torfþak,
og burnirótin blómgast þar
vel eftir 70 ár. — Til þess
að verja þakið fyrir bruna,
var rifið hrís og þakin suð-
urhliðin. — Seinni part sumars var lirísið tekið, þakið
slegið og hrísið notað til að svíða við sviðin.
Jón bygði einnig öll fjárhúsin og hlöðu við hvert
hús, sem enn standa óhreyfð og í bestá lagi. — Þverá er
kirkjustaður. — Um miðja öldina sem leið var þar gömul
og Ihrörleg torfkirkja. Hana endurbygði Jón sumarið
1877 úr höggnu grjóti. — Steinana í veggina ljet hann
taka upp fyrir handan Laxá, í svonefndum Hólaklöpp-
um, en þeir voru dregnir á sleða heim að vetrinum og
nauti beitt fyrir. — Grjótið var alt ihöggvið, og síðan
ilímt með steinlími, það gerði maður, sem Jakob lijet, og
nefndur var múrari, hann hafði verið í Danmörku og
lært þar múraraiðn. — Kirkjan stendur enn með 'sömu
ummerkjum og í fyrstu. — Jón smíðaði sjálfur trjeverkið
í hana. (Hann hafði verið við smíðanám í Reykjavík í 3
ár og hafði sveinsbrjef þaðan.) En til að mála fjekk hann
mann, sem hjet Þorgrímur Austmann. — Jón vandaði alt
til kirkjunnar af mestu prýði eins og honum var lagið,
enda var luin á orði fyrir það, hve falleg hún væri. —
Margir voru þeir sem komu til að skoða hana og bæinn,
Bergljót Guttormsdóttir.