Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 139
Hlín
137
allra deilda fjelagsins, og við kreppulánin 1935 halði
deildin ekki þurft að taka til sjersjóða sinna, átti Jjar á
meðal Skuldatryggingasjóð Þennan sjóð ákvað deildin
að leggja til bátakaupanna til minningar um Jón Ingi-
mundarson, sem verið hafði J>ar deildarstjóri nær því frá
byrjun til æfiloka.
Enn vantaði Jdó milli 10 og 20 þúsundir til ]>ess að bát-
urinn væri að fullu greiddur. — Þá upphæð samjrykti að-
alfundur K. N. Þ. einróma að leggja fram til minningar
um Árna Ingimund'arson, sem verið hafði utanbúðar-
maður fjelagsins meir en 50 ár og aðalverkstjóri J>ess
sama tíma, einnig lengst af sá maður, sem fyrstur hafði
samband við skip, sem til Kópaskers komu hverju sem
viðraði. — Þá varð Árni fyrstur til að byggja íbúðarhús
og stofn'a heimili á Kópaskeri, enda er hann í minningu
manna ímynd liins djarfa og dugmikla stafnbúa á dreka
kaupfjelagsins.
7. desember 1952 bauð stjórn K. N. Þ. konum á l je-
lagssvæðinu til nokkurs fagnaðar í húsakynnum fjelags-
ins á Kópaskeri, var J>á björgunarbáturinn settur á flot
og nafn gelið, ,,Bræðraborg“.
Þó dagur þessi væri í alla staði ánægjulegur, verður
mjer minnisstæðast, er báturinn flaut við bryggjuna, og
kona eins J>ess manns, sem jafnan vinnur að skipaaf-
greiðslu á Kópaskeri, leit til bátsins og sagði með von-
glöðum ihreim í röddinni: „Hann getur líklega ekki
sokkið!“
Enga ósk á jeg betri um framtíð Kaupfjelags Norður-
Þingeyinga, en að það, sem bygt er upp með samtökum
fólksins og fórnarlund, sökkvi ekki.
Pjetur Sigurgeirsson
frá Oddsstöðum á Sljettu. Formaður Kaupfjel. Norður-Þing.