Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 136
134
Hlín
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Minningarsjóð Ragnhildar Stefánsdóttur og Páls Bene-
diktssonar, Steinunnar Gunnlaugsdóttir og Árna Jónssonar.
1. gr. Sjóðui'inn heitir: „Foreldrasjóður“, og er stofnaður af
hjónunum Guðlaugu Pálsdóttur og Guðmundi Árnasyni, Gils-
árstekk í Breiðdal, í tilefni af 50 ára hjúskaparafmæli þeirra
2. okt. 1953 og til minningar um foreldra þeirra.
2. gr. Stofnfje sjóðsins er kr. 2000.00 — tvö þúsund krónur —
og skal sjóðurinn ávaxtaður í íslenákum banka, sem ríkið
ábyrgist.
3. gr. Allir vetxir leggjast við höfuðstól til ársins 1980, en þá
skal fyrst verja 3/4 vaxta til verðlauna samkv. 4. gr. Tuttugu
árum síðar skal næst veita verðlaun, og þá 4/5 ársvaxtanna.
Síðan skal verðlaun veita á 10 ára fresti og jafnan 4/5 árs-
vaxtanna í hvert sinn.
Þegar sjóðurinn er orðinn 50 þúsund krónur skal öllum vöxt-
um varið til verðlauna ár hvert, en höfuðstól má aldrei skerða.
4. gr. Tilgangur sjóðsins er að verðlauna þann bónda, sem ber
af um omikla fóðuröflun á jörð sinni, samfara afbragðs fóðrun
búfjár, og þá húsfreyju, sem skarar fram úr í trú, siðgæði og
góðum heimilisreglum.
Starfssvæði sjóðsins er innan marka Breiðdalshrepps eins
og þau eru nú.
5. gr. Búnaðarfjelag Breiðdæla er eigandi og skal sjá um sjóð
þennan, og er fjelagsstjórnin jafnan stjórn sjóðsins. — Ber
fjelagið ábyrgð á að sjóðurinn sje í öruggri vörslu og fje hans
varið samkvæmt 4. gr. — Stjórn sjóðsins vinni kauplaust, en
útlagður kostnaður vegna gjörðareikningsbókar o. þ. h. greiðist
af vöxtum sjóðsins.
6. gr. Ef Búnaðarfjelag Breiðdæla verður lagt niður, skal síð-
asta stjórn þess, ásamt þrem húsfreyjum — kosnum af giftum
konum í Breiðdal — gjöra þær breytingar, sem nauðsynlegar
þykja á framkvæmdaratriðum, þó þannig að grundvallarskil-
yrðin haldi gildi sínu.
7. gr. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið, og skulu reikn-
ingar jafnan lagðir fram endurskoðaðir á hverjum aðalfundi
Búnaðarfjelagsins.
8. gr. Leita skal staðfestingar Forseta íslands á skipulagsskrá
þessari og hún birt í B. deild Stjórnartíðindanna.
Gilsárstekk 17. maí 1954.
Guðlaug Pálsdóttir, Guðmundur Árnason.