Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 104
102
Hlin
livert um handavinnunám, um útvegun á áhöldum, efni
til 'heimavinnu, útvegun kennara, útvegun markaða fyrir
sölumuni, útvegun uppdrátta til vefnaðar og útsaums.
iÞessu er svarað með brjefum, símtali og skeytum.
7. Heimilisiðnaðarfjelag íslands, Reykjavík, hefur gef-
ið út íslenska uppdrætti, sem ofið hefur verið eftir í öll-
um skólurn og námsskeiðum, sem liafa vefnað á námsskrá
sinni. — Uppdrættirnir hafa verið notaðir mikið af al-
menningi til hannyrða. — Jeg hef annast útgáfu þessa
f’yrir fjelagið, og sent það um land alt til söiu og annast
innheimtu.
Fjögur gömul, íslensk stafróf til hannyrða, er verið að
gefa út þessa daga. — Listamenn okkar hjálpa til þess að
gera uppdrætti.
8. Jeg er í stjórn Heimilisiðriaðarfjelags Islands, Reykja-
vík. Fjelagið gengst fyrir námsskeiðum í handavinnu
hjer í Reykjavík.
9. Jeg hef leigt skrifstofu í miðbænum, svo jeg geti
verið þar til viðtals fyrir þá, sem þurfa að finna mig
vegna starfs síns í þágu heimilisiðnaðar. — Þar geri jeg
ráð fyrir að hai’a safn við hendina, sem jeg lref til sýnis,
bæði fyrir kennara og fyrir almenning. — Hef þar iíka
fundi með bæjarmönnum, sem áhuga ha£a fyrir þessum
málum.
Mánuðina maí, júní, júlí og ágúst ferðaðist jeg mikið
í þágu heimilisiðnaðarins. — Allan maímánuð var jeg á
ferðalagi kringum Breiðafjörð: Staðarfell, Búðardal,
Stykkishólmur, Flatey. — Leiðbeindi í skóláhandavinnu,
hafði bókbandsnámsskeið, álti tal við skólastjóra og
skólanefndir, hjelt sýningar á sýnishornasafni, sem jeg
hef jafnan með mjer á ferðum.
í þessari ferð stofnaði jeg Samband breiðfirskia
kvenna. (Það er síðasta sambandið, þá er landið alt kom-
ið í sambandsfjelög.) — Sambandið ákvað að gangast fyrir
breiðfirskri sýningu næstu árin.
Samtök um tóvinnuframleiðslu til sölu í Stykkishóhni