Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 21
Hlin
19
Laufey Sigríður, ekkja eftir Þórð Daníelsson bónda á
Sílastöðum. — Býr þar með börnum sínum.
Benjamín, prestur að Syðra-Laugalandi, kvæntur
Jónínu Björnsdóttir frá Karlsstöðum í Fljótum.
Inga, kaupkona í Reykjavík.
Auður, gift Adolf Leonard Holm, Girnli, Manitoba.
Theódór, bifreiðarstjóri og vélvirki á Ytri-Tjörnum,
kvæntur Guðmundu Finnbogadóttur frá Patreksfirði.
Svava, gift Tryggva Guðmundssyni, Akureyri.
Baldur Helgi, bóndi Ytri-Tjörnum, kvæntur Þuríði
Kristjánsdóttur frá Hellu, áður vefnaðarkennara á Lauga-
landi.
Bjarlmar, prestur á Mælifelli, kvæntur Hrefnu Magn-
úsdóttur frá Akureyri.
Valgarður, bæjarfógetafulltrúi, Akranesi, kvæntur
Björgu ívarsdóttur frá Arney, Breiðafirði.
Hrund, gift Einari Thorlacius bónda á Tjarnalandi.
Dagrún, kennari við Húsmæðraskólann á ísafirði.
Friðrik, húsgagnasmiður, verkstjóri við vinnustofu
sjúklinga á Kristneshæli, kvæntur Kolfinnu Gerði Páls-
dóttur áður húsmæðrakennara.
Börn sín studdu hjónin til einhvers náms af fremstu
getu.
Geta má nærri, að móðirin og húsfreyjan á Ytri-Tjörn-
unr liafði löngum í ærið mörg horn að líta. Marga þurfti
að fæða og klæða. Gestkoma var þar og mikil, meðfram
vegna sveitastjórnarstarfa rnanns hennar. — Svo rnjög sem
hún unni útiveru og útivinnu, var hún oftast bundin
innivið. Þó kom fyrir, þegar liðlítið var úti og á lá, að
hún brá sér út með hrífu sína. Munaði þá um hana. Hún
var eldskörp við vinnu, svo að kalla mátti hamfarir. Hún
fór með börn sín til kirkju eins oft og hún fékk því við
kornið, gangandi, eins og fyrr var títt, og reyndi þá á
litla fætur að fylgja henni eftir. — í æsku hafði hún verið
smali og snör í snúningum. Og stundum greip hana þrá
2»