Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 34
32
Hlin
Og nú þegar haustar og húma fer að,
við komum að færa þjer þökk fyrir það.
í hálfa öld vanstu hið veglega verk,
og varst í þeim störfum svo hugrökk og sterk.
Við þökkum af alhug og biðjum sem börn,
að blessun þjer fylgi í verki og vörn,
að Drottinn hann lýsi þjer leið yfir lönd,
sem liggur þjer hulin, að sælunnar strönd.
Guðrún Jakobsdóttir, Reykjarfirði í Grunnavíkurhreppi.
Ragnheiður skrifar í júlí 1956 eftir ósk ritstjórans: „Jeg lærði
ljósmóðurfræði hjá Jónassen, sem þá var landlæknir, og var jeg
útskrifuð af Ljósmæðraskólanum 6. febrúar 1897 ásamt 10 skóla-
systrum mínum, og skipuð ljósmóðir þá í norðurumdæmi Grunna-
víkurhrepps og er það enn, þó lítið sje nú nema að nafninu til.
Jeg er tvígift. Fyrri maður minn hjet Guðbjartur Kristjánsson
frá Kollsá hjer í hreppi. — Við eignuðust tvö börn, dreng og
stúlku, sem bæði eru á lífi. Guðbjartur andaðist 30. ágúst 1915.
— Seinni maður minn er Tómas Guðmundsson frá Leirá hjer í
hreppi. — Við eigum engin börn, en höfum tekið nokkur börn til
fósturs."
(Ragnheiður er handavinnukona mikil. — Hefur stundað vefn-
að af mikilli kostgæfni alt fram á þennan dag. — Hún er og tó-
vinnu- og spunakona mikil. — „Hlín“ hefur oft flutt frjettir af
vinnubrögðum hennar.) — H.
Anna Petrea Jakobsdóttir,
Anna Petrea Jakobsdóttir er fædd í Dæli í Sæmundar-
hlíð í Skagafjarðarsýslu 22. júní 1881. — Foreldrar lienn-
ar voru Jakob Pálmason, Guðmundssonar, og kona hans
Sigríður Sveinsdóttir Sveinssonar. — Verður sú ætt rakin
til ýmsra merkra mianna, þó jeg kunni ekki svo skil á því,