Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 140
138
Hlín
Ferðasaga.
Brot.
í sumar veittist mjer sú ánægja að sitja aðalfund S. N. K., sem
haldinn var á Blönduósi dagana 1. til 3. júní. — Jeg var fulltrúi
Kvenfjelagasambands Suður-Þingeyinga.
Eins og að líkum lætur, sagði jeg ferðasögu mína og fréttir af
fundinum á Blönduósi á aðalfundi K. S. Þ., er haldinn var að
Skjólbrekku í Mývatnssveit 13. júní sl. Formaður S. N. K., Hall-
dóra Bjarnadóttir, sem stödd var á þeim fundi, bað mig að láta
sér i tje part úr ferðasögu minni til birtingar í Hlín. — Það er því
samkvæmt ósk hennar að jeg skrifa eftirfarandi línur.
Kl. 5 á sunnudag, 3. júni, lijeldum við fulltrúar heimleiðis með
áætlunarbíl til Akureyrar. — Jeg var himinglöð yfir fundarset-
unni og öllu því er jeg hafði sjeð og heyrt hjá húnvetnsku mennta-
fólki.
Við ókum sem leið liggur til Skagafjarðar. — Utsýni af Vatns-
skarði þetta bjarta síðdegi var töfrandi fagurt, svo sem jafnan á
slíkum stundum.
Meðan bíllinn rennur austur yfir grænkandi Hólminn ákveð jeg
að láta nú verða af því, sem margsinnis hefur ílogið í liuga minn,
þegar jeg hef átt leið um Skagafjörð, að gista frændkonu mína og
vinkonu, Helgu húsfreyju á Silfrastöðum. — I glampandi kvöld-
sólarskini kveð jeg ferðafjeiagana og geng með pjönkur mínar
heim að Silfrastöðum. — Þegar jeg h't yfir hina fríðu byggð varð-
aða svipmiklum ljöllum, spyr jeg ósjálfrátt með skáldinu: „Seg
mjer hvað indælla auga þitt leit, íslenska kvöldinu í lallegri sveit."
Þau Silfrastaðahjón, Helga og Jóhann Lárus, taka mjer tveim
liöndum. — Þau hjónin hafa búið á Sillrastöðum í nokkur ár. —
Þangað hurfu þau bæði frá óskildum störfum. — Jóhann bóndi
hefur lokið háskólanámi og stundaði um skeið kennslustörf við
Menntaskóla Akureyrar. — En honum fór svo, að liin rama taug
föðurtúnanna dró liann heim á æskustöðvarnar, og reisti hann
bú á æskuheimilinu. — Htlga húsfreyja var forstöðukona EIús-
mæðraskóla Akureyrar í fjögur ár. — Nú una þessi mentahjón vel
hag sínum við búannir. Þau hafa reist stórt og myndarlegt íbúðar-
hús, sem er þó enn að nokkru ófullgert, og komið sjer upp stóru
sauðfjárbúi. — Einkasonurinn, Jóhanncs, fríður og liraustlegur
sjö ára snáði, elst nú upp í hollum skóla íslenskra sveitastarfa á
búi foreldra sinna.