Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 47
Hlin
45
Vinátta þín var traust, og trygðin hrein,
og tíminn aldrei vann á kostum þeim!
Andinn var fagur, heill, í hverri grein.
— Hver á sjer meiri auð í þessurn Iheirn?
iÞú unnir öllu, er veikt og hrakið var,
á verði stóðst um smælingjanna hag.
Þú dáðir sjerhvern geisla, er birtu bar
til blessunar, um langan æfidag.
Snæbjörn Einarsson.
Þverárheimilið
í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu.
Aðallega til minningar um Jón Jóakimsson og Bergljótu
Guttormsdóttur, konu hans.
(Að mestu eftir umsögn Herdisar Benediktsdóttur, Bergi, Ás-
garðsvegi 18, Húsavík, sem var alin upp hjá þessum hjónum,
og er nú 85 ára gömul.)
Þverárbærinn er líklega .einn sá elsti torfbær á Norð-
urlandi, senr enn er búið í.
Bærinn er yfir 100 ára gamall, bygður fyrir 1850 af
Jóni Jóakimssyni hreppstjóra og l)ónda þar. Jón Jóa-
kimsson var nrerkur framfaramaður, fæddur 1810 á Mý-
laugsstöðum í Aðaldal. Hann fór ungur til síra Jóns Jóns-
sonar á Grenjaðarstað til náms og fósturs.
Hann flutti að Þverá, senr var eignarjörð fyrri konu
hans, Herdísar Ásmundsdóttur frá Stóruvöllum í Bárðar-
dal 1845. — Jörðin var niðurnídd og húsakostur ljeleg-
ur. Jón bygði upp bæinn með slíkri prýði og vand-
virkni, að hann stendur enn í dag óhreyfður nreð sömu
lnisaskipun og ummerkjum eins og fyrir hundrað árufti