Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 42
40
Hlín
sorgarengill allar nætur
inn í sálir frjódögg grætur.
Heldur tærum hjartans lindum,
iheima opnar sálum blindum.
Innar, innar æ hann bendir,
ást og skilning huga sendir.
Heimili sitt prýddi og fegraði Sigríður margvíslega,
en ekki síst með blómrækt og hannyrðaskarti. — Hún var
snillingur við saurna og hannyrðir. — Segja mátti, að hún
legði á sig listraun við hvert fat, er hún sneið, og hvert
nálspor, er hún stakk, svo kröfuliörð var hún við sjálfa
sig um vandvirkni. — Ljósmynd af útsaum eftir Sigríði
fylgir grein þessari, en því miður er það ekki litmynd. —
Sigríður bjó sjálf til uppdráttinn að myndinni. — Land’s-
lagið saumaði hún 1914—1915, og hlaut nokkru síðar
verðl'aun fyrir það verk á sýningu, senr haldin var að
Breiðumýri í Reykjadal. — Útsaunrsmyndir Sigríðar —
eins og Ijóðin bera fegurðarleitinni glögt vitni og
auk þess hæifleikum handarinnar.
Til eru á íslandi uppsprettulindir, er aldrei frjósa,
hversu kalt senr verður. — Umhverfis þær grær fyr á vor-
in og bliknar seinna gróðurinn á haustin en á víðavang-
inunr. bar er löngunr blóm að finna, þótt alt unr þrotni
annarsstaðar. — Hreinar og tærar bera ]rær allan ársins
hring 'lit himinsins, nema yfir þær fenni. — í þeinr sjer
sólin mynd sína. — 4>ar vaka vorboðar og Ijósálfar.
Þessar lindir nrinna nrig á Sigríði á Hveravöllum.
Mannssálin er að sjálfsögðu dýpri en þessar lindir og
speglar lrærri hinrin, en eins og þær eru nreðal linda var
Sigríður meðal manjra.
Karl Kristjánsson, Húsavík.