Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 94
92
Hlin
veikindi og sorgir koma næst. Við þurium aðeins að skipu-
leggja þetta og iá sem flestar til að vera þáttakendur.
Koma lijer svo að lokum reglur þær, er settar hafa verið
fyrir Heimilishjálpina í Reykjavík.
Leiðbeiningar til heimila, sem fá hjálparstúlku.
1. gr.
Hjálparstúlkur eru undir eftirliti og unisjá forstöðukonu, sem
borgarstjóri skipar, og fá þær laun sín greidd úr bæjarsjóði. —
Hjálparstúlkan á að fá frítt fæði á heimili því, seni hún vinnur á.
Ennfremur strætisvagnagjöld. — Ekki má hjálparstúlka taka við
greiðslu á heimilunum fyrir vinnu, sem unnin er á venjuleguin
vinnutíma, en heimili sem aðstoð fær, skal endurgreiða liana skv.
gjaldskrá til Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar (Heimilisbjálp inn-
an mánaðar frá því aðstoð var veitt). — Bæjarráð getur veitt eftir-
gjöf á greiðslu fyrir heimilishjálp að nokkru eða öllu leyti, að
fengnum tillögum forstöðukonu heimiiishjálparinnar.
2. gr.
Hjálparstúlka tekur að sér þau slörf, sem venjulega hvíla á
liúsmóðurinni, en er eigi skyldug til að annast stórhreingerningar
og ekki meira en einn stórþvott, hállsmánaðarlega, þann tíma, sem
hún dvelur á heimilinu.
3. gr.
Vinnutími hjálparstúlku er 48 klst. á viku að meðattali. Sunnu-
daga og helgidaga eiga lijálparstúlkur frí. — Heimilin skulu reyna
að skipta verkum þannig, að hjálparstúlka geti lokið vinnu sinni á
venjulegum vinnutíma. — Eftirvinnu, sunnudaga- og helgidagavinnu
verða heimilin að annast sjálf. Þó getur forstöðukona veitt undan-
þágu frá þessu ákvæði, þar sem það er talið óhjákvæmilegt.
4. gr.
Hjálp er venjulega ekki veitt lengri tíma en 10 til 14 daga, nema
alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi.
Iteglur fyrir stúlkur, sem laka aö sér heimilishjálp i Reykjavik.
1. gr.
Hjálparstúlkur eiga í störfum sínum að fylgja þeini reglunt og
samþykktum, sem stjórn heimilishjálparinnar setur. — Sé um vafa-