Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 105
Hlin
103
(þar er he'milisiðnaðarfjelag). Jeg aðstoða við þá fram-
leiðslu og hjálpa með sölu.
Búnaðarsamband Dala- og Snæfellsnessýslu hafði fund
í Stykkis'hólmi, meðan jeg dvaldi þar Þar voru mættir
20—30 fulltrúar úr öllum hreppum sýslnanna. — Þeir
samþyktu að veita 5 heimilum styrk til spunavjelakaupa,
100,00 kr hverju. — Jeg fjekk leyfi til að tala á fundi
jressum. — Hvatti jeg fundarmenn, meðal annars, til að
hlynna vel að hinum ágæta skóla sínum, Staðarfellsskól-
anum.
6.-9. júní var jeg á Landsfundi kvenna í Reykjavík,
þar sem mættir voru fulltrúar af öllu landinu. Þar talaði
jeg iháli heimilisiðnaðarins.
Það sem eftir var af júní, var jeg í Norður-Þingeyjar-
sýslu, fyrst í Núpasveit, Axarfirði, og Kelduhverfi. —
Hafði sýningu á afarfjölmennri samkomu í Núpasveit 19.
júní. Var á fundi með öllum kvenf jelögumun sameigin-
lega í Ásbyrgi. — Kaupfjelagsfundur fjölmennur var
haldinn dagana, sem jeg dvakli á Kópaskeri, og fjekk jeg
að tala þar.
í Laxárdal í Þistilfirði var Sambandsfundur norð-
lenskra kvenna haldinn seint í júní 1932. — Jeg hafði þar
sýningu, bæði á mínum munum og úr Iireppum 'N. Þ. —
Ákveðið var að reyna að koma á hjeraðssýningu fyrir N,-
Þ. árið 1935.
Júlímánuð var jeg á Hjeraði, mestmegnis á Hallorms-
stað, að vinna að vefnaðarbókinn i með Sigrúnu Blöndal.
— Jeg legg mjög mikið upp úr því að fá góða íslenska
tæfnaðarbók. — Á Hjeraði v,ar jeg á fundum með konum
og tók þátt í sýningum. — Aðalfundur austlirskra kvenna
var haldinn á Hallormsstað, meðan jeg var þar.
Fundur haldinn á Laugum í S.-Þing, eftir beiðni Þing-
eyinga, um söluframleiðslu á ullariðnaði.
10. Skrifað öllum stærstu kaupfjelögum landsins og
þau beðin að sjá um að hafa í verslunum sínum á kom-
anda vetri alt }:>að sem almenningur þarf til heimavinnu: