Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 49
Hlin
47
því það var á orði hvað hann væri til fyrirmyndar, og
allur umgangur á iÞverá, bæði úti og inni, með ágætum.
~ Arngrímur málari rnálaði mjög fagra altaristöflu í
kirkjuna.
Þau Jón og Herdís áttu 6 börn, 3 syni og 3 dætur. Syn-
irnirvoru: Benedikt,*) Snoni og Jón. — Dæturnar: Guð-
ný, Aðalbjörg og Man'a. — Jón Jóakimsson misti konu
sína árið 1859.
Árið 1866 giftist ihann öðru sinni Bergljótu Guttorms-
dóttur, stúdents, frá Arnheiðarstöðum í Fljótsdal. —
Bergljót var 10 árum yngri en maður ihennar, fædd 1826.
— Hún kom að austan með Þórði, sýslumanni, Svein-
bjarnarsyni, sem var fyrstur sýslumaður bjer á Húsavík,
og Ingibjörgu konu lians. — Bergljót hal'ði verið lang-
dvölum á heimili Gísla Hjálmarssonar, læknis, og Guð-
laugar konu hans, á Höfða, var það mikið merkisheim-
ili, en mest segist Bergljót ihafa lært af föður sínum, jafn-
vel hannyrðir: Baldýringu, knipl o. fl. — Bergljót var
mjög vel að sjer til munns og handa, hal'ði 1 íka oft stúlk-
ur til náms, sem voru að koma sjer upp faldbúningum.
Hún var góð stjúpa, segir Herdís, trúnaðarvinur Bene-
dikts á Auðnum, stjúpsonar síns, hann bar margt undir
Bergljótu, mat ráð hennar ntikils.
Jóni og Bergljótu varð ekki barnla auðið, en þau ólu
upp 4 fósturbörn. Og voru þau þessi: Páll Stefánsson,
bróðursonur Bergljótar, stórkaupmaður í Reykjavík
(bann nefndi hús sitt „Þverá" til minningar um æsku-
beimilið), Halldóra Sigurðardóttir, bróðurdóttir Berg-
*)Benedikt, sem var elstur, varð síðar landskunnur undir nafn-
inu Benedikt á Auðnum. — Hann átti fyrir konu Guðnýju Hall-
dórsdóttur frá Grenjaðarstað. — Þau Benedikt og Guðný bjuggu
allan sinn búskap á Auðnum, sem er í Þverár landareign. —
Benedikt og Guðný áttu 5 dætur: Herdísi, Hildi, Aðalbjörgu,
Unni (skáldkonu) og Bergljótu. — Hildur giftist manni, sem Jón
hjet Pjetursson. — Þau bjuggu allan sinn búskap á Auðnum, og
áttu 8 böm, eitt af þeim er Halla, sem nú er húsmóðir á Þverá.