Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 79
Hlín
77
Þannig hefur 30 piltum verið hjálað um alfatnað og
mörgum iþeirra einnig um yfirhafnir, svo og nærföt, skó
o. fl., en auk þess hafa yfir 60 menn verið styrktir fjár-
hagslega. — Því miður er ekki hægt í þessu stutta erindi,
að greina nákvæmlega frá þeim margvíslegu fyrirgreiðsl-
um, sem við höfum látið föngunum í tje.
Starfinu 'hafa fylgt mikil ferðalög til þess að útvega
þessum ungu mönnum heimili í sveitum, og hefur þetta
aukist með hverju ári. — í flestum tilfellum hefur þeim
verið fylgt á heimilin, sem þeim er ætlað að dvelja á, og
mánaðarlegt eftirlit haft með dvöl þeirra þar.
Allmargir piltar hafa farið til sjós og komist undir
verndarvæng góðra yfirmanna á skipum, en ekki hafa
þær vistir reynst eins vel og sveitaheimilin, enda þar
fleira, sem glepur æskumenn og truflar þá. — Nokkrir
hafa byrjað nám í iðngreinum, og hefur þar fengist góð-
ur árangur.
Skal nú í stuttu máli vikið að árangri þeim, sem orðið
hefur af starfseminni þessi 5 ár, sem liðin eru:
Fyrir milligöngu Fangahjálparinnar hafa verið náðað-
ir 82 fangar, þ. e. 50 hafa fengið skilorðsbundnar náðan-
ir dómsmálaráðherra, en 32 fangar, aðallega yngri menn,
hafa fengið reynshilausn úr fangelsinu undir eftirliti
Fangáhjálparinnar (1955 er talan 107).
Af þessum mönnum hefur einn dáið, en 17 fallið í
sekt aftur og þessvegna orðið að fara aftur í fangelsið (27
árið 1955). Hinir 64 af föngunum eru við vinnu sem hjer
segir: (22 nóv. 1955 er tala fanganna 80. — Talan í svig-
um er 1955.) Þessar tölur eru birtar:
22 menn eru á fiskveiðum og í siglingum (30).
17 eru verkamenn við ýmsa lajidvinnu (22).
7 menn eru við landbúnaðarstörf (7).
5 menn eru við vjelsmíðar (6).
4 menn eru bifreiðastjórar (6).
3 eru iðnaðarverkamenn (3).
1 maður er rafvirki (1).