Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 154
152
Hlín
I>að hafa orðið miklar framfarir hjer í Árborg síðan þú varst
á ferð hjer. — Nú eigum við lítið sjúkraliús og nýjan skóla, og sem
stendur er verið að koma upp stóru og vönduðu samkomuhúsi.
Eru það mest íslendingar, sem að því standa. — Margar nýjar
verslanir eru komnar og ótal íbúðarhús.
Afstaða bænda hjer um slóðir er frekar slæm tvö síðastliðin ár.
Uppskerubrestur alment vegna votviðra, margir gátu ekki sáð í
akra sína í vor vegna bleytu í jörðu frá því í fyrra, og þetta sumar
var síst betra framan af, einlægar rigningar fram á mitt sumar. —
Þeir, sem hafa nokkuð af skepnum hafa gott upp úr þeim.
Þakka jeg svo kærlega fyrir „Hlin“, sem þú hefir sent mér.
„H'lín“ er ávalt kærkominn gestur á mitt heimili. — Herdis.
Til eeskustöðvanna d Austurlandi á burtfararstundu þaðan:
Svo kveð jeg ykkur, fögru fjöll,
fjölskreytti dalur, grundir, hlíðar,
rómskæru svanir, runnir víðar,
beljandi lækir, blóni um völl,
vinhlýi fjallblær, vatnið bláa,
vinir í gröfum, hreysið lága. —
Nú ríður sól í Ránarhlað,
og rökkva fer, jeg legg af stað.
Gisli Jónsson frá Háreksstöðum. Ritstj. Tímarits Þjóðræknisfél.
Úr brjefi frá Pálrna Lárussyni í Winnipeg til Jónatans bónda á
Holtastöðum í Langadal Austur-Húnavatnssýslu:
„Hjálmar sonur minn sýndi mjer brjef, sem hann var nýbúinn
að fá frá þjer, sem jeg hafði mjög mikið gaman af, eins og þú
getur kannske giskað á, en þó vænst um það sem stílað var til
mín sjerstaklega, Jtó ósatt væri.
Jeg bið Jjig að skila kveðju minni til Jóu og Stínu, systra þinna,
ef þú sjer Jrær áður langt um líður. — Þú getur skilað til Stínu frá
mjer, að altaf hafi mjer fundist föngin ljettust, sem hún saxaði,
þegar verið var að sæta heyið á túninu. — Og Jrá getur þú sagt
Jóu, að glaðnað hafi yfir mjer, Jiegar jeg heyrði liana kalla af
kirkjugarðinum: „Þið eigið að koma heiml" Sjerstaklega á kvöldin.
Jeg man ýmislegt, og Jiað nokkuð greinilega frá unglingsárunum,
en nú kemur Jjað fyrir, ef hastarlega er komið að mjer, og jeg
spurður: „Hvað ertu nú að lesa, gamli minn?“ — „O, það er
markataflan!" — „Markataflan, hvaða bók er J)að nú eiginlega?"
„O, það er Jjýðingarlaust að reyna að skýra |>að fyrir J)jer. Þú skilur
Jjað ekki.“