Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 68
66
Hlin
við þá að nýju, og þeim trygð önnur störf, sem betur eru
við þeirra (hæfi. Má því með miklum sanni segja, að víða
í Bretlandi sje ekki slept hönd af unga fólkinu, fyr en
það hefur fundið sjálft sig. — Mjög lathygl isverðum leið-
beiningabókum, í þessum efnum, er útbýtt meðal breskr-
ar æsku, — auðvitað ókeypis.
Skólastjórar í Osló tjáðu mjer, að stöðuvalsnefndir þar
í borg, og í þjettbýli Noregs yfivleitt, ynnu mjög mikil-
vægt starf meðal unglinganna. Lögðu þeir m. a. áherslu
á, að þær ættu ríkan þátt í að skapa rjettan skilning for-
eldra á hæfileikum og námsgetu barna sinna, og koma
þannig í veg fyrir heimskulegt kapp margra foreldra um
langa skólagöngu barna, sem ekki væru til þess falfin. —
Leiðbeiningar um atvinnuval byrja þar í 7. bekk barna-
skólans, eða síðasta skylduárið, en í Noregi er skólaskylda
einu ári styttri en hjer.
Er gangur þeirra mála í aðalatriðum þessi:
Fulltrúar frá stöðuvalsnefnd koma snemma á hverju
skólaári til nemenda 7. bekkjar og ræða við þá ítarlega
um starfsgreinar og stöðuval, útbýta hinni glæsilegu at-
vinnuleiðbeiningabók fyrir norska æsku: ,,Jeg vil bli til
noe“, sýna kvikmyndir úr atvinnulífinu o. fl. Hvetja þeir
nemendur mjög til að hugsa þessi mál og ræða þau ræki-
lega við foreldrania.
Einum mánuði seinna eru nemendur látnir skrifa rit-
gerð um þá starfsgrein, sem.þeir hafa mestan hug á, að
ioknum umhugsunarfrestinum og viðræðum við foreldr-
ana. Síðan eru ritgerðirnar sendar til skrifstofu s.töðu-
valsnefndar til athugunar. Að lokinni 'athugun ræða full-
trúar við nemendur að nýju, ýmist einslega eða í hópum,
eftir því sem þeir telja við eiga.
f nóvember boða fulltrúar stöðuvalsnefndar og skóla-
stjórar 'hlutaðeigandi foreldra til fundlar um þessi mikil-
vægu mál. Þá eru og ætíð á fundum þessum gagnfræða-
og mentaskólakennarar, sem skýra fyrir foreldrum kröfur
og sjónarmið þeina stofnana. Opnast þá 'augu margra