Hlín - 01.01.1956, Blaðsíða 16
14
Iilín
lögum B. í. — Búnaðarfjelagið naut styrks frá ríkinu, og
því var ekki eingöngu ætlað að starfa fyrir landbúnaðinn
utanhúss, heldur -einnig að aukinni þekkingu kvenna í
heimilisstörfum. — í því skyni hafði það ár eftir ár kr.
3.000.00 á fjákhagsáætlun sinni.
Það var af þessum peningum, sem B. í. hafði styrkt
skóla Elínar Briem í Iðnó, sem síðar varð eignarskóli.
Hólmfríðar Gísladóttur. — Við könnumst allar við þeirra
mikla brautryðjendastarf, og umferðakensluna, sem áður
er getið.
Nú var farið fram á það við B. í., að K. í. fengi þessa
upphæð til umráða. — Var það auðsótt mál.
í stjórn Sambandsins voru kosnar:
Ragnhildur Pjetursdóttir, Guðrún J. Briem, Guðrún
Pjetursdóttir.
Búnaðarmálastjóri S. S. hjelt fundarkonunr veislu
meðan á þinginu stóð. — Forsætisráðherra, Tryggvi Þór-
hallsson, hjelt fundarkonum einnig veglega veislu, áður
en þingi kvennanna var slitið.
Að loknu þingi komu fundarkonur saman á heimili
formanns K. í. og þar var Búnaðarmálastjóra fært mál-
verk af sveitabýli, sem þakklætis- og viðurkenningarvott
fyrir hina miklu hjálp, er hann bafði veitt, við stofnun
Kvenfjelagasambands íslands.
Jeg sagði í upp'hafi máls míns, að jeg hefði verið kosin
í nefnd á Landsfundi kvenna, er haldinn var á Akureyri
að tilhlutan Bríetar Bjarnhjeðinsdóttur. — 'Það má segja,
að jeg hiafi brugðist því trausti, sem mjer var þar sýnt,
með því að skila ekki því máli, sem mjer var þar falið,
aftur til Landsfundarins.
Sú leið, sem jeg fór, fanst mjer traustari og öruggari
fyrir málefnið og framgang þess. Samviska mín vísaði
mjer þá leið. — Jeg læt aðna dæma um, hvort jeg hef gert
rjett. — En við Bríet komum okkur saman um að skifta
þessum málum á milli fjelaganna þannig: