Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 54

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 54
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201254 YngStU leikSkÓlabörnin: Samfélag í leik Sara stendur og heldur á bolta sem hún horfir á, Anna situr á stól og horfir fram í leikstofuna en Jón liggur á dýnu við hlið þeirra og horfir á Söru. Sara nær í stól eins og þann sem Anna situr á og sest niður með boltann í fanginu. Jón og Sara horfast í augu. Jón stendur upp, horfir á Söru sem fylgir honum eftir með augunum. Anna stendur nú upp og Sara líka. Anna lítur á Söru og nær í kerru sem er þarna skammt frá. Sara sleppir boltanum og nær í aðra eins kerru. Jón tekur boltann, sest í stólinn og fylgist með telpunum ganga fram og til baka með kerrurnar. Jón er ánægður á svip, skríkir og spennir líkamann. Skyndilega dettur Anna á Jón, en snýr sér við og klappar honum vingjarnlega á kinnina. Jón brosir og réttir boltann í átt að önnu sem snýr sér frá honum. Jón kastar boltanum frá sér og er leiður á svip. Hann sest á dýnuna og lítur alvarlegur á rannsakanda. Í upphafi upptökunnar beina börnin athyglinni að því að mynda tengsl og koma sér á framfæri hvert við annað. Sara og Jón ná augnsambandi og taka þannig þátt hvort í annars heimi um stund. Samtímis leitar Anna eftir augnsambandi við Söru, fylgir því eftir með hreyfingu og nær í leikfang. Í kenningu Bujtendijks er uppruna leiksins lýst sem barnslegri athöfn sem á upphaf sitt í hreyfingu (Åm, 1989; Hangaard Rasmussen, 2001). Anna kveikir með athöfnum sínum áhuga Söru á leik. Sara losar sig við boltann, sem ef til vill hefði getað verið miðill í áframhaldandi samskiptum hennar og Jóns. Sara virðist upplifa önnu sem ákjósanlegri leikfélaga en Jón en það er í samræmi við niðurstöður annarra rannsókna sem benda til þess að hærri aldur gefi börnum sterkari félagslega stöðu (Johansson, 1999, 2011b; ytterhus, 2002). Jón, sem er mun yngri en telpurnar, leitar eftir tengslum við Söru með augnsambandi sem má túlka sem tilraun til þess að mynda sameiginlegan grundvöll fyrir samskipti og leik. Með athöfnum sínum leita börnin eftir tengslum og gefa fyrirætlanir sínar til kynna. Ferlið virðist tengjast upplifun þeirra af því að vera saman eða samhuglægni þar sem börnin ýmist viðurkenna eða draga tilveru hvert annars í efa (Merleau-Ponty, 1962, 1994). Leikur telpnanna snýst um að ýta kerrunum fram og til baka í leikstofunni en það er í samræmi við kenningu Bujtendijks um að meginvirkni leiks ungra barna felist í hreyfingum fram og til baka. Einnig benda rannsóknir Løkken (2000a, 2000b) til þess að gagnkvæm hreyfitjáning einkenni merkingarsköpun ungra barna þar sem börnin byggja upp leik sem tengist upplifun þeirra á samhuglægni sem er bæði undirstaða leiksins og forsenda þess að hann nái að þróast. Þetta er jafnframt í samræmi við kenningu Merleau-Pontys (1962, 1994) um að samhuglægni sé forsenda þess að barnið skapi tengsl við aðra einstaklinga og umhverfið. Jón líkir eftir fyrri athöfnum Söru og sest í stólinn með boltann í fanginu og horfir á telpurnar leika sér. Líkamstjáning hans gefur til kynna að hann lifi sig inn í leik þeirra og virðist þannig vera í senn í eigin lífheimi og þátttakandi í heimi telpnanna. Hið einstaklingslega og hið félagslega fléttast saman, eins og Merleau-Ponty (1962, 1994) bendir á. Þetta kemur jafnframt heim og saman við niðurstöður rannsókna sem benda til þess að mikilvægur þáttur í námi ungra barna í leikskólum sé að líkja eftir öðrum börnum (Lindahl og Pramling Samuelsson, 2002) og að þau sýni hæfni til að lifa sig inn í tilfinningar hvert annars (Løkken, 1996). Þegar Anna dettur á Jón sýnir hún honum umhyggju og lætur þannig í ljósi að þetta var ekki viljandi gert. Hún sýnir með athöfnum sínum að hún veit að það er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.