Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 187

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 187
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 187 erl ingUr JÓHannSSon Þessi lýsing á lifnaðarháttum fólks í nútímaþjóðfélagi og afleiðingunum fyrir heilsufar barna og unglinga, og sú staðreynd að aðgerðir heilbrigðisyfirvalda til að reyna að draga úr vandanum hafa ekki heppnast, sýnir að beita þarf nýjum aðgerðum til að ná árangri. Breyttir lifnaðarhættir hafa haft það í för með sér að börn og unglingar eru nú mun meira í „vörslu” annarra aðila en foreldra sinna en þau voru á árum áður. Flest börn eru vistuð í leikskólum frá unga aldri og dvelja þar oftast allan daginn. Skóladagur- inn í grunnskólanum er langur, sérstaklega þegar frístundaskóli/skólavistun og/eða tómstundastarf er tekið með í reikninginn. Það er því ljóst að ef sporna skal gegn þeim neikvæðu lífsstílsþáttum sem fylgja breyttum lifnaðarháttum fólks, gegna ekki ein- göngu íþróttakennarar heldur einnig allir leik- og grunnskólakennarar lykilhlutverki. Aukið hEilsuuppEldi í skólum Viðhorf, kunnátta og þekking kennara í leik- og grunnskólum á heilsu og heilsutengdum þáttum er því augljóslega ein af forsendum þess að mögulegt sé, í það minnsta, að draga úr neikvæðri þróun heilsufarsþátta hjá börnum og unglingum. Því er mikil- vægt að auka þekkingu kennara á þeim þáttum sem fylgja eða geta skýrt aukna offitu, hreyfingarleysi og óhollt mataræði barna og unglinga. Einnig er æskilegt að kennarar átti sig á afleiðingum neikvæðra lífsstílsþátta eins og offitu og tengslum þeirra við andlega þætti jafnt sem félagslega. Íþróttakennara- og íþróttafræðinám við Háskóla Íslands á Laugarvatni hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Umfang námsins hefur breyst, en það var lengt í þrjú ár og sett á háskólastig árið 1998, og nú er námið fimm ára háskólanám. Hugmyndafræði og samsetning námsins hefur breyst mikið á undanförnum árum og nú er aukin áhersla lögð á að útfæra námið út frá því umhverfi og þeim aðstæðum sem börn og unglingar lifa við á Íslandi. Þetta er ekki auðvelt því þótt stærstur hluti barna og unglinga sé í góðu líkamlegu formi, hreyfi sig reglulega og lifi heilsusamlegu lífi er, eins og áður segir, nokkuð stór hluti barna og unglinga sem eru of þung, hreyfa sig lítið og eru ekki við góða heilsu. Þessi staðreynd gerir auknar kröfur til íþrótta- kennara því færni, kunnátta og þekking nemenda er mjög misjöfn. Í þessu samhengi er vert að benda á að hið sama gildir um aðra kennara í grunnskólanum því umfang kennarastarfsins hefur vaxið umtalsvert á undanförnum árum. Ástæður þess eru fyrst og fremst þær að stærri hluti af uppeldi barna og unglinga fer nú fram í skólunum en á árum áður. mEnntun fAgfólks á sViði hEilsuuppEldis Til að sporna við vaxandi heilsubresti meðal barna og unglinga í framtíðinni er mikil- vægt að efla menntun og þekkingu íþróttakennara/íþróttafræðinga og annarra kenn- ara á sviði forvarna og heilsuuppeldis. Heilsuuppeldi eða heilbrigðisfræðsla hefur á undanförnum árum orðið æ veigameiri þáttur í starfi og viðfangsefnum starfsfólks
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.