Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Síða 163
EFTIRMÁLI UM STÝRINGARSAMFÉLÖG
unnar vörur eða setur þær saman úr pörtum. Hann leitast við að selja
þjónustu og að kaupa athafnir. Þetta er kapítalismi sem snýst ekki leng-
ur um framleiðslu heldur um afurðir, það er að segja að sölu og markaði.
Þannig veldur hann tvístrun og í stað verksmiðja koma fýrirtæki. Fjöl-
skylda, skóh, her og verksmiðja eru ekki lengur hliðstæðar en ólíkar ein-
ingar sem eigandinn einn tengir saman, hvort heldur það er ríkið eða
einkaeigandi, heldur eru þetta umbreytanlegar, kóðaðar myndir einstaks
fyrirtækis þar sem stjómendumir einir era efdr. Jafhvel listin hefur flutt
sig ffá lokuðum stöðum og inn á opnar rásir bankanna. Markaðir em
tmnir með því að taka völdin fremur en að setja upp ögunarkerfi, með
því að festa verð fremur en með lækkun kosmaðar, með því að umbreyta
afurðum fremur en með sérhæfðri framleiðslu. Spilling öðlast hér nýtt
vald. Söludeildin verður miðstöð eða „sál“ fyrirtækisins. Okkur er sagt
að fyrirtæki hafi sál og er örugglega ekki hægt að ímynda sér hræðilegri
tíðindi. Markaðssetning er nú tæki til samfélagsstýringar og getur af sér
það hrokafulla kyn sem nú drottnar yfir okkur. Stýring er til skamms
tíma og breytist hratt en er þó samfelld og takmarkalaus. Ogunin var
hins vegar til langframa, endalaus og ósamfelld. Maðurinn er ekki leng-
ur innilokaður heldur skuldum vafinn. Eitt hefur reyndar ekki breyst -
kapítalisminn heldur enn þremur fjórðu mannkyns í algerri örbirgð,
þessi hópur er of fátækur til að safna skuldum og of fjölmennur til hægt
sé að loka hann inni. Stýringin þarf ekki aðeins að takast á við upplausn
landamæra heldur einnig margföldun bámjámshverfa og gettóa.
III. Aætlun
Við þurfum engan vísindaskáldskap til að finna stýringartæki sem getur
staðsett hvað sem er hvenær sem er á opnu svæði - dýr á veiðisvæði,
mann í fyrirtæki (rafeindamerking). FélLx Guattari hugsaði sér bæ þar
sem allir geta notað (staklings-) rafeindakort þegar þeir yfirgefa íbúð
sína, götuna, eða hverfið sitt og opnað með því ýmsar hindranir. En
kortinu kann að vera hafnað suma daga eða á tilteknum tímum dagsins.
Hér er það ekki hindrunin sem ræður, heldur tölvan sem sér um að all-
ir séu á leyfilegum stað og annast þannig altæka stillingu.
\dð dögun stýringarkerfanna ætti félagstæknileg rannsókn á þeim að
snúast um grundvallaratriði og lýsa því sem nú tekur við af innilokunar-
stöðum ögunarinnar sem allir segja að séu að hrynja. Kannski birtast
161