Húnavaka - 01.05.1973, Page 31
HÚNAVAKA
29
keypt nýja steypuhrærivél fyrir barnaskólann. Var hún notuð við
báðar byggingarnar til mikils hagræðis.
Hér voru sérstaklega duglegir og áhugasamir verkamenn og gott
að eiga við þá. Hef ég ekki kynnzt jafngóðum verkamönnum annars
staðar. Aftur á móti var lítið um smiði.
Um mánaðarmótin okt.-nóv. vorum við búnir að reisa húsin. Þá
var haldið sameiginlegt reisugildi fyrir báðar byggingarnar á hótel-
inu. Þar var margmenni, vel veitt og skemmtilegt í alla staði.
Eftir áramótin og fram á næsta sumar var unnið við að innrétta
skólann og mjólkurstöðina. Þegar þessum verkefnum var lokið vildu
þeir ekki sleppa mér. Það væru miklar byggingar framundan í sveit-
unum. Þá var Hafsteinn á Gunnsteinsstöðum kominn í spilið. Haf-
steinn var hygginn maður. Margir réðu honum frá því að kaupa
búnaðarsambandsmótin, sem Þórir Baldvinsson hafði lýst fyrir okk-
ur. Ég ráðlagði Hafsteini hiklaust að kaupa þau. Það mundi borga
sig. Þetta voru ekki beint mót til húsagerðar, heldur í fyrstu holl-
ensk hugmynd að stíflugarðamótum. Tengijárnin, sem fylgdu þeim
voru 45 eða 50 cm löng. Þau afmörkuðu þykktina á veggjunum,
sem mótin voru framleidd fyrir. Á meðan tengijárnin voru flutt
inn fengust þau ekki af annarri lengd. Þegar kom til tals að ég sett-
ist að á Blönduósi, taldi ég nauðsynlegt að setja upp verkstæði og á
það var fallizt. Stígandi h. f. var stofnaður og verkstæðishúsið og
íbúðin byggð sama árið.
Fyrirtæki eru ekki reist með berum höndunum. Því fór svo er
timar liðu, að ég sá fram á að mig vantaði rekstrarfé. Seldi ég þá
húsið mitt í Reykjavík, sem ég átti mikið til skuldlaust, og fékk það
borgað út í hönd. Notaði ég þá peninga sem rekstrarfé og hef alltaf
notað, þangað til ég byggði mér þetta íbúðarhús við Mýrarbrautina
1970.
Það hefur verið gott að skipta við Húnvetninga. Þeir hafa allir
staðið í skilum, hver einasti maður.
ÉG ER Á MÓTI ÞESSARI MEISTARADELLU
Þú byggðir mikið í sveitunum?
Já. Á tímabili byggðum við mikið fyrir bændurna. Raunar var
ég ráðinn til að hafa eftirlit með byggingum þeirra, en ég setti upp