Húnavaka - 01.05.1973, Page 32
30
HÚNAVAKA
vinnuflokk í 2—3 ár meðan mest var að gera. Þá voru flest húsin
byggð á einn ári.
Þú tókst fljótlega. lœrlinga?
Já, fyrstir vorn Einar Evensen og Ottó Einnsson. Þeir unnu hjá
mér í mjólkurstöðinni sem verkamenn fyrsta árið. Mér líkaði strax
vel við þessa stráka. Þeir voru duglegir og traustir. Þegar ég flutti
hingað tók ég þá sem lærlinga og síðar komu fleiri ágætir strákar.
Allir mínir lærlingar hafa staðið sig ágætlega og fengið sín réttindi.
Annars hef ég alla tíð verið á móti þessari meistaradellu, þ. e. að
strákar læri hjá meisturum. Þeir eiga að læra í skólum, en þá verða
skólarnir að vera fullkomnir — hafa góða kennara og verkfæri.
Þær hafa verið skrítnar sumar þessar gömlu kreddur í kringum
iðnaðinn. Lengi vel þurftu lærlingarnir að smíða sveinsstykkið ein-
göngu með handverkfærum. Nú fyrst eru þeir, sem ráða þessum
málum, farnir að skilja að lærlingarnir verða fyrst og fremst að
kunna að fara með vélar og tilheyrandi verkfæri.
Það er að mörgu leyti óhagstætt að taka lærlinga. Þeir ern kröfu-
harðir með kaup. Margir þeirra hafa fyrir fjölskyldu að sjá. Ekki
geta þeir lifað, nema hafa hátt kaup. Þetta skilja allir. Ef á að kenna
lærlingi að vinna, þarf að liggja yfir honum. Þetta er bara ekki gert.
Hann er settur í grófvinnu, — látinn banka í mótum. Þar er hægt að
hafa upp úr honum. Sumir koma lítið inn á verkstæði og verður
því kunnátta þeirra í molum. Þetta hefur því miður verið svona til
langs tíma. Ég hef lengi haldið fram að þetta ætti að breytast og
iðnskólarnir að verkmennta nemana.
Hitt er annað mál, að á seinni hlnta námstímans gæti verið æski-
legt að neminn færi út í atvinnulífið einhvern vissan tíma. Hann
ynni þá við stórbyggingar og á verkstæðum, sem hafa fullkomin
tæki, kynntist öðrum og fjölbreyttari vinnuaðferðum og sjóndeildar-
hringurinn víkkaði.
SVÖRTU KASSARNIR
Ég hef hcyrt að pig dreymi fyrir ýmsn?
Misjafnlega er það skýrt. Þegar ég var að læra í Reykjavík, kom
ég oft til móðursystur minnar á Frakkastíg 11. Hún var móðir Guð-
mundar Sveinssonar skólastjóra Samvinnuskólans í Bifröst. Guð-