Húnavaka - 01.05.1973, Page 178
176
HÚNAVAKA
lljótt upp. Héldust hlýindi út
árið, en hvassviðri voru afar tíð
í des. Ofsaveður af suðri og suð-
vestri geisaði aðfaranótt 22. des.
og olli miklu tjóni víða um land.
Skaðar urðu þó minni í hérað-
inu, en víða annars staðar. í árs-
lok var nær enginn snjór í byggð
og klaki afar lítill í jörð. Þrátt
fyrir úrfelli og umhleypinga á
síðari hluta ársins hlaut það hin
beztu eftirmæli, sem hið hag-
stæðasta bændum og búaliði hér-
aðsins um langt skeið.
Pétur Sigurðsson.
SKJÖL MILLI ÞILS OG VEGGJA.
Eitt af vandamálum okkar nú-
tímamanna er hvað hleðst upp af
allskonar bréfum, skjölum, skrif-
uðum bókum, verzlunarbókum
og öðrum slíkum í skjalasöfnum.
Ráðstefnur eru haldnar um eyð-
ingu skjala úr skjalasöfnum en
efni þeirra sett inn á smáfilmur.
Þetta vandamál var einnig til
fyrrum, þótt það væri ekki
vandamál safna heldur einstakl-
inga.
Fyrir um 40 árum var mikið
magn verzlunarbóka á loftinu
yfir Pétursborg á Blönduósi. Þá
var verið að búa út herbergi á
rishæðinni og nokkuð af bókun-
um var notað sem einangrun á
útveggina, en megnið af bókun-
um var sett í þurran brunn við
húsið og kveikt í. Kraumaði í
brunninum í marga daga.
Tveim aratugum síðar var
kvistur á suðuíhliðinni rifinn og
hluta af þekju lyft. Þá kom
nokkuð af bókum þessum í ljós.
Þá var gert við glugga á suður-
enda fyrir um 8—9 árum og rifið
niður í gólf. Fundust þá nokkrar
bækur í viðbót og sáust fleiri.
Var þá fyrirhugað að ná þeim
sem eftir voru við tækifæri.
Á sl. surnri ritaði dagblaðið
Tíminn nokkuð um þessi mál og
var það m. a. hvatning til þess að
hafizt var handa nú í vetur þegar
leigjandaskipti urðu í íbúðinni.
Eigendur íbúðarinnar, Guðrún
Magnúsdóttir og Óskar Jóhann-
esson frá Fagranesi, leyfðu að
bækurnar, sem fyndust yrðu
teknar án endurgjalds og varð-
veittar á sýsluskjalasafninu. Ár-
angurinn varð góður. Milli 20
og 30 bækur fundust á suður-
gaflinum. Voru þær mjög lítið
skemmdar og fúi vart finnan-
legur. Elztu bækurnar eru frá
1862, en sú yngsta frá 1914. Leit-
að var að bókum víðar í íbúð-
inni, en án árangurs. Neðri !iæð-
in er einangruð með torfi.
Það hneykslast sjálfsagt ein-
hverjir á að svona skyldi hafa
verið farið með þessar bækur. En
hafið í huga orð meistarans frá