Húnavaka - 01.05.1973, Page 221
HÚNAVAKA
219
sveit Torfalækjarhrepps með 2
vinninga. í hraðskákkeppni sigr-
aði Blönduós með 16 vinning-
um, annar var Sveinsstaðahrepp-
ur með 131/2 vinning, þriðja var
Svínavatnshreppur með 12i/£
vinning og fjórða var Torfalækj-
arhreppur með 6 vinninga.
Þess skal getið að Blönduós og
Svínavatnshreppur tefldu ekki,
en samið var um jafntefli í öll-
um skákunum.
Eins og undanfarin ár tefldi
Jón Torfason á nokkrum mót-
um. Hann tefldi nú í annað sinn
á alþjóðlegu móti, Reykjavíkur-
skákmótinu, og varð 12. af 16
keppendum með 5i/£ vinning og
er það góður árangur. Skaut
hann þremur íslandsmeisturum
aftur fyrir sig. Á skákþingi ís-
lands varð Jón 7. af 10 keppend-
nm í landsliðsflokki. Hlaut
hann 3i/2 vinnlng. Þá tefldi Jón
á þriðja borði í 19. Heimsmeist-
aramóti stúdenta, sem haldið var
í Graz í Austurríki. ísland lenti
í 15. sæti. 29 þjóðir tóku þátt í
keppninni. Jón hlaut 7 vinninga
af 12 mögulegum eða rúm 58%.
Jónas Halldórsson.
ÞJÓÐLEGUM VERÐMÆTUM
HALDIÐ TIL HAGA.
Heimilisiðnaðarnefnd S.A.H.K.
hefur á undanförnum árum látið
vinna að endurbótum á gömlu
húsi á Kvennaskólalóðinni. Þar
á að setja upp heimilisiðnaðar-
safn. Komin er í húsið rafmagns-
hitun og snyrtiaðstaða og það
þiljað að innan, þannig að sett
er timburklæðning í loft og
veggir klæddir plötum. Húsið
má því heita frágengið, aðeins
eftir að setja upp hillur og skápa,
svo að hægt verði að koma mun-
unum fyrir á viðeigandi hátt.
Þetta verk hafa Kristján Gunn-
arsson yfirsmiður og menn hans
unnið. Er þetta gamla hús á
góðri leið með að verða allra
fallegasta safnahús.
Frú Guðrún Jónsdóttir arki-
tekt gerði allar teikningar og
hefur fylgzt með verkinu, okkur
að kostnaðarlausu. Hún mun
einnig verða með í ráðum við
uppsetningu safnsins.
Heildarkostnaður er nú um
kr. 750 þús. Framlög hafa verið
frá flestum félögum innan sam-
bandsins, t. d. hafa á síðastliðnu
ári tvö kvenfélög látið til safnsins
40 þús. kr. Leitað var eftir styrk
frá sveitarsjóðum og hafa flestir
látið eitthvað, t. d. Blönduós-
hreppur 30 þús. kr. og Engihlíð-
arhreppur 15 þús. kr. Tvö síðast-
liðin ár höfum við fengið smá
styrk frá Alþingi, vonandi verð-
ur framhald á því.
Söfnun muna hefur gengið vel
og hafa margir gefið mjög dýr-