Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 11

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 11
SÖFnUn OG SýninGARRýMi 11 Svæði verður sýningarrými Um sinn skal dvalið við safnið sem stað er aðkomufólk sækir heim, gestir sem ekki eiga heima í byggðarlagi safnsins. Slíkir staðir eða „setur“ – og sum hver geta vart talist „söfn“ nema í víðum skilningi orðsins – hafa sprottið upp út um allt land á síðustu árum og sérsvið þeirra eru hvalir, reðir, draugar, selir, galdrar og svo framvegis. Sumir staðanna tengjast íslenskum miðaldabókmenntum. Mér þótti það einkennileg reynsla, fyrir fáeinum árum, að verða vitni að því hvernig æskuslóðunum og gamla þorpinu mínu, Borgarnesi, var breytt í „safn“ eða sýningarrými. Er ég óx þar úr grasi vissi ég vel að þetta voru lendur Egils Skallagrímssonar; að faðir hans var einn af landnámsmönnum Íslands í árdaga; enn fremur að Egill hefði verið skáld og söguhetja í einni frægustu og litríkustu Íslendingasögunni. Þótt götur í Borgarnesi heiti margar eftir persónum í Eglu og ég hafi sjálfur átt heima við Egilsgötu, voru einu sjónrænu minj- arnar haugur nokkur í lystigarði þorpsins þar sem faðir og sonur Egils ku báðir hafa verið lagðir til hinstu hvílu. Þetta gerbreyttist árið 2006 þegar Landnámssetrið var opnað í Borgarnesi með tvær fastasýningar sínar, Landnámssýninguna og Egilssýninguna, og með nýjum kennileitum, vörðum sem komið var fyrir á nokkrum stöðum sem skipta máli í Eglu – stöðum sem eru m.a. heimsóttir í sérstökum kynnisferðum á vegum set- ursins. Óhætt er að segja að þetta setur, ásamt sýningum sem það stendur fyrir, m.a. leikritum byggðum á Eglu, hafi notið hylli og það hefur fengið opinberar viðurkenningar. Á vefsvæði setursins má lesa, raunar á ensku, eftirfarandi yfirlýsingu: „The Sagas – iceland’s most important cultural heritage“.7 Jafnframt er þó tekið fram að Landnámssetrið sé ekki „safn“ þessarar mikilvægustu menn- ingararfleifðar Íslands; það sé fremur innsetning þar sem nútímatækni sé beitt til að veita sýningargestum ákveðna beina reynslu af því sem gerðist er siglt var um opið haf til að setjast að á ókunnum slóðum: „it is not a museum but rather an installation. Multi-media and theatrical techniques are employed to help the visitor experience first hand the trepidation and excitement of setting off over the open ocean for lands unknown.[...] A complete circuit of each exhibition takes about 30 minutes.“8 7 Landnámssetur Íslands, Vefslóð: http://www.landnam.is. Sótt 13. febrúar 2010. 8 Landnámssetur Íslands. Vefslóð: http://english.landnam.is/default.asp?Sid_id= 27656&tid=1&Tre_Rod= 002|&qsr. Sótt 13. febrúar 2010. Hér mætti ef til vill spyrja hvort þetta sé dæmi um það hvernig sýningar sem þessar geti hneigst í átt til skemmtanahlutverks á kostnað gagnrýninnar söguskoðunar, eða hvort fyrst og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.