Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 17
SÖFnUn OG SýninGARRýMi
17
brunni sem óneitanlega er hlaðinn táknrænu gildi og lífmagni á sinn hátt
en er ekki hluti hinnar eiginlegu sýningar á safninu.14
Í bók sinni Art and Artifact. The Museum as Medium birtir James
Putnam mörg dæmi um safnasöfnun, þ.e. verk sem sjálf draga fram eðli og
hlutverk safna. Hann setur á bókarkápu sína mynd af innsetningu Antonys
Gormleys, European Field, þar sem klassískt sýningarrými er undirlagt af
mergð lítilla leirvera sem virðast stara á okkur áhorfendur en eru líklega að
horfa á verk á veggnum sem við sjáum ekki, vegna þess að við höfum verið
sett í þann stað. Þessar leirverur eru í senn sýningargripir og einskonar
áhorfendur á sýningu þeirra merku listaverka sem hér hanga á veggjum.15
14 Andrea Fraser, „A Gallery Talk 1989“, Museum Highlights. The Writings of Andrea
Fraser, ritstj. Alexander Alberro, Cambridge og London: The MiT Press, 2005,
bls. 105.
15 Mynd í James Putnam, Art and Artifact. The Museum as Medium, bls. 166–167 (og
á bókarkápu).
Antony Gormley, European Field, 1993. Hér á sýningu í Kiel 1997.