Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 26
26
VALDiMAR TR. HAFSTEin
gefa góða innsýn í breytingar á þeim hugmyndum sem Evrópumenn gerðu
sér um þekkingu við upphaf nútímans; um hvernig þekkingar skyldi aflað,
hvernig hún skyldi sett fram og hvaða hlutverki hún gegndi í samfé-
laginu.3
Í bréfi sem hann skrifaði 5. febrúar 1644 gefur Ole Worm ungum vini
sínum þetta ráð: „Það er virðingarvegur að leita hins ókunna.“4 Sama ár
lýsti August Buchner, þýskur pennavinur Worm frá Wittenberg, virðingu
hans og frægð:
Því hve mikils er ekki um vert að njóta velþóknunar og velvildar
yðar, hvers nafn og frægð er ekki aðeins lofuð á meðal eins fólks
eða þjóðar heldur um alla jörð, alls staðar þar sem bókmenntir
og vísindi eru rannsökuð og í heiðri höfð? Það er þá ekki aðeins
móðir Danmörk og löndin við Eystrasalt, heldur einnig hið
lærða Þýskaland, hin snjalla Ítalía og hið mælska Frakkland sem
undrast og dást að Worm mínum og telja hann til þeirra sem
öðlast hafa ódauðleika með rannsóknum sínum á fornfræðum
og æðri vísindum, til viðbótar við aðrar stórkostlegar kúnstir.5
1965–1968; H.D. Schepelern, Museum Wormanium. Dets forudsætninger og tilbli-
velse, Kaupmannahöfn: Munksgaard, 1971.
3 Eftir að handritið að þessari grein var farið til ritstjóra fullbúið barst mér í hendur
bók sem Camilla Mordhorst sendi frá sér 2009 og ber heitið Genstands fortællinger.
Fra Museum Wormianum til de moderne museer, Ritröð: Tidlig moderne, 7,
Kaupmannahöfn: Museum Tusculanum Forlag, 2009. Þá var of seint að styðjast
við þessa bók eða fara í samræður við höfund hennar, sem þó væri full ástæða til að
gera, en þó styðst ég hér við tímaritsgrein höfundar um sama efni frá 2002 sem ber
heitið „Systematikken i Museum Wormanium“, Fortid og Nutid, september 2002,
bls. 204–218.
4 „insvetas tentare vias, proximus ad gloriam aditus est“, Ole Worm, Olai Wormii et
ad eum doctorum virorum epistolæ, ii. bindi, bls. 805 (bréf 777); Ole Worm, Breve fra
og til Ole Worm, bls. 8.
5 „Qvantum enim est placere atque probari iis, qvorum nomen & fama, non per
unam aliqvam gentem aut populum, sed ubiqve terrarum, ubi literæ & sapientiæ
studia vigent, ac in honore sunt, celebrantur? Certè WORMiUM meum, non
matre DAniA tantum, & qvicquid terrarum ad Balthicum jacet, verum & erudita
Germania, & ingeniosa italia, & facunda Galia, miratur, colit, atqve in iis æstimat,
qvi postalias maximas artes, antiqvitatum & literarum elegantiorum studi se
dudum immortales reddiderunt“, Ole Worm, Olai Wormii et ad eum doctorum
virorum epistolæ, 2. bindi, bls. 882–883 (bréf 829); Ole Worm, Breve fra og til Ole
Worm, iii. bindi, bls. 19–20.