Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 30

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 30
30 VALDiMAR TR. HAFSTEin sýnis í einu herbergi, í furðustofunum, eða á smáskika af landi, í grasagörð- unum. Þessi rými vitnuðu um þekkingu og vald, og vöktu fyrir vikið bæði undrun og forvitni. Þau endurspegluðu almenna þróun þessa tíma; sú samþjöppun þekkingar sem safnið fól í sér var hliðstæð við aukna sam- þjöppun pólitísks valds á sama tímabili, sem glöggt má merkja af uppgangi heimsvaldastefnunnar og þeim valdatengslum miðju og jaðars – móður- lands og nýlendna – sem einkenndi evrópsku heimsveldin. Samþjöppun valds var þá einnig mikil innan ríkja Evrópu enda voru 17. og 18. öldin tími einveldisins víða í álfunni. Tengslanet þekkingar Það var undir þessum kringumstæðum sem Ole Worm skipaði sér á bekk með „virtúósum“ síðendurreisnarinnar. Worm var sannkallaður endur- reisnarmaður, forfallinn safnari og fjölfræðingur. Hann skipar heiðurssess í menntasögu Dana og m.a.s. á Íslandi hefur hann stundum verið nefndur faðir norrænnar fornfræði (Svíar eiga að vísu aðra kandídata í það emb- ætti).12 Þar með hefur nafn hans verið tengt forsögu ýmissa nútímafræði- greina, meðal annars safnafræði, fornleifafræði, textafræði og þjóðfræði. Ole Worm kom á fót frægu safni sem varð grunnur að þjóðminjasafni Dana og hafði frumkvæði að því að spurningaskrár um þjóðhætti og forn- minjar voru sendar til sóknarpresta í Danmörku og noregi. Hann ritaði mikið verk um rúnir og hann safnaði og gaf út bæði þjóðfræðaefni og bók- menntir frá miðöldum. Worm var annars prófessor í læknisfræði við háskólann í Kaupmannahöfn og læknir að aðalstarfi. ýmsir frammámenn dansks samfélags reiddu sig á læknisþjónustu hans, m.a. Christian Friis kanslari og Holger Rosenkrantz höfuðsmaður yfir Íslandi, en auk þess leituðu ráða hjá honum krónprins- inn Christian, konungsdóttirin og kóngurinn sjálfur. Þess má svo geta að Worm sendi íslenskum samverkamönnum og pennavinum sínum bæði læknisráð og lyf yfir hafið, þ.á m. Arngrími lærða Jónssyni, Þorláki Skúla- syni Hólabiskupi og þeim Gísla Oddssyni og Brynjólfi Sveinssyni Skál- holts biskupum.13 12 T.d. Halldór Hermannsson, „Ole Worm“, Ársrit Hins íslenska Fræðafélags í Kaup- mannahöfn 2, 1917, bls. 44; Gils Guðmundsson, „Faðir norrænnar fornfræði“, Gestur. Íslenskur fróðleikur gamall og nýr, ritstj. Gils Guðmundsson, Reykjavík: iðunn, 1988, bls. 186–194. 13 Ejnar Hovesen, Lægen Ole Worm 1588–1654. En medicinhistorisk undersøgelse og vurdering, Århus: Aarhus Universitetsforlag, 1987, bls. 211–230.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.