Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 31

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 31
31 ÞEKKinG, ViRÐinG, VALD Ole Worm fæddist í Árósum 1588. Faðir hans, Willum Worm, var vel- stæður kaupmaður líkt og föðurafi hans, Johan Worm, sem fluttist til Árósa frá niðurlöndum. Wormunum vegnaði vel. Þau urðu fljótt ein mesta mektarfjölskyldan í Árósum og Willum Worm var kjörinn bæjar- stjóri þar. Móðir Ole Worm hét inger Olufsdatter, en faðir hennar, Oluf Jørgensen, var einmitt bæjarstjóri, eins og tengdasonurinn, í Horsens sem er dagleið fyrir sunnan Árósa.14 Að Worm stóðu því efnaðir kaupmenn og embættismenn í báðar ættir og hann var sannarlega hluti af hinni nýju stétt borgara sem um þetta leyti var byrjuð að vinna sér sess utan við lénskerfið og kirkjuna, einhvers staðar á milli aðals og bændafólks. Stakar glefsur úr uppvexti hans koma fram í minningargrein sem Kaupmannahafnarháskóli birti viku eftir andlát hans 31. ágúst 1654, en danski textafræðingurinn og safnamaðurinn H.D. Schepelern birti minn- ingargreinina einnig í doktorsritgerð sinni frá 1971. Ritgerðin fjallar ann- ars um Museum Wormanium, safnskrá sem Ole Worm samdi undir lok ævinnar og var gefin út að honum látnum árið 1655, og er einnig í brenni- depli í þessari grein. Safnskráin byggði á fyrirlestraglósum Worm og fjallar um þá muni sem finna mátti í safni hans. Schepelern gerir ítarlega grein fyrir skránni í doktorsritgerðinni og hér er mjög stuðst við þýðingu hans á henni.15 Schepelern gaf einnig út ásamt Holger Friis Johansen heildar- bréfasafn Ole Worm í danskri þýðingu í þremur þykkum bindum, en þau komu fyrst út á latínu árið 1751.16 Þá hefur Jakob Benediktsson gefið út bréfaskipti Worm við Íslendinga á frummálinu.17 Bréfin eru önnur mikil- væg heimild sem hér er lögð til grundvallar. Worm gekk í barnaskóla í Árósum á árunum 1595–1601 en ferðalög hans hófust snemma. Þrettán ára gamall var hann sendur til þýska bæjarins Lüneburg til náms við hina virtu Johanneum menntastofnun. Hann dvaldi þó aðeins í eitt ár þar og fluttist árið 1603 til Emmerich við ána Rín þar sem hann dvaldi hjá ættingjum og gekk í jesúítaskóla um þriggja ára skeið. Hann sneri að því búnu aftur til Danmerkur en gat ekki lokið námi frá Kaupmannahafnarháskóla vegna fyrirskipunar danska konungsins frá árinu 1604 um að vernda menntastofnanir gegn spillandi áhrifum ungra Dana sem numið höfðu hjá jesúítum. 14 Sama rit, bls. 30–40. 15 H.D. Schepelern, Museum Wormanium. 16 Ole Worm, Breve fra og til Ole Worm; Ole Worm, Olai Wormii et ad eum doctorum virorum epistolæ. 17 Ole Worm, Ole Worm’s correspondence with Icelanders.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.