Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 37

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 37
37 dreifðari hóps en ella, sýna þá þekkingu sem þeir höfðu á sínu valdi og auka um leið hróður sinn og safnsins.33 Ole Worm gaf út skrá yfir safnið sitt í þremur útgáfum. Sú fyrsta frá árinu 1642 var lítið annað en upptalning á safnkostinum. Önnur útgáfa leit dagsins ljós árið 1645, endurskoðuð og endurbætt, en samanstóð þó enn einkum af upptalningu. Síðustu æviárin vann Worm aftur á móti að stór- aukinni útgáfu með ítarlegri lýsingu á tilkomu, sögu og mikilvægi hlut- anna í safninu. Upptalning á „stórmennum“ í færslum safnskrárinnar gefur klárlega til kynna hverjir töldust aðal-virtúósarnir og með því að tengja sig við þá í gegnum hlutina í safni sínu sýndi Ole Worm að hann væri fullgild- ur meðlimur í hinum valdamikla heiðursklúbbi, „safnari fágætra manna jafnt sem fágætra muna.“34 Þessi þriðja útgáfa af safnskránni í fullri lengd var gefin út að Worm látnum árið 1655 undir nafninu Museum Wormianum. Eins og venja var á þessum tíma skipar skráin mununum í flokka þar sem fyrstu þrír samsvara þremur ríkjum náttúrunnar: Steinaríkinu, plönturíkinu og dýraríkinu. Skráin endar með fjórða flokknum, artificialia, sköpun mannsins það er að segja, en innan flokksins eru gripirnir taldir fram í sömu röðinni frá hinu „lægsta“ til þess „æðsta“ með hliðsjón af hráefninu sem þeir eru skapaðir úr. Alls staðar er hið fágæta og forvitnilega í brennidepli. Flokkunin er þannig óður til sköpunarverksins: Hún sýnir fram á regluna í heiminum, þar sem hver hlutur á sinn stað, en hún leggur líka áherslu á almætti Guðs sem er yfir þessar reglur hafinn, eins og margir safngripirnir votta með fágæti sínu og framandleika.35 Þrátt fyrir að maðurinn sé flokkaður með dýrunum í þriðju bók þá er staða hans sem kóróna sköpunarverksins þó undirstrikuð með því að mannlegar leifar eru taldar upp síðastar í virðing- arröð kaflaskipunarinnar. Sköpunarverk mannanna, sem fjórða bókin greinir frá, eru svo til vitnis um guðlegan neista mannkynsins sem getur umskapað sköpunarverk Guðs. Í síðasta kafla þriðju bókar lýsir Worm m.a. vansköpuðum fóstrum úr safni sínu, risavaxinni tönn og risavaxinni höfuðkúpu sem áttu að tilheyra risavöxnum þjóðflokkum sem gengu um jörðina fyrir syndafall (múmíur 33 Marjorie Swann, Curiosities and Texts, bls. 9–10. 34 Sama rit, bls. 11. 35 Joy Kenseth, „A World of Wonders in One Closet Shut“, The Age of the Marvelous, ritstj. Joy Kenseth, Hanover, new Hampshire: Hood Museum of Art, Dartmouth College, 1991, bls. 81–101, hér bls. 88. ÞEKKinG, ViRÐinG, VALD
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.