Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 92

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Page 92
92 TinnA GRÉTARSDÓTTiR sem við höfðum ekki gefið gaum að fyrir utan áhyggjur um að tölvur okkar myndu hrynja 1. janúar 2000. Það átti hins vegar eftir að breytast.“42 „Guðríður varð hetjan okkar“ Eins og nikolas Rose bendir á einkennist stjórnviska nýfrjálshyggju af því að virkja sjálfsprottið framtak og skapa þannig farveg til að „stjórna úr fjar- lægð“ í gegnum hugmyndir um frelsi einstaklingsins og framtak hans.43 Með uppgangi hugmyndafræði nýfrjálshyggju, sem Íslendingar vísuðu gjarnan til sem útrásar, fylgdi mikil umræða um frumkvæði einstaklinga, ábyrgð þeirra og frelsi, og áhersla var lögð á að minnka umsvif ríkisins með einkavæðingu. Athafnamenning festi rætur og eitt helsta keppikefli íslenska ríkisins í Vesturheimi var að styrkja íslenska sjálfsmynd fólks af íslenskum ættum í Kanada og virkja það til að vera skapandi, uppbyggjandi og umsvifamikið í þágu þverþjóðlegra tengsla. Hugmyndin um að gefa Kanadabúum verk Ásmundar, hina Fyrstu hvítu móður í Ameríku, var ein hugmyndanna sem kom frá íslensk-kanadíska samfélaginu sem ríkisstjórn- in ákvað að hrinda í framkvæmd í annars þéttri landkynningardagskrá Íslendinga í norður-Ameríku. Meginþorri dagskrárliða hátíðahaldanna voru menningar- og listviðburðir sem hentuðu áformum stjórnvalda sem auglýstu eftir „hugmyndum að einstökum verkefnum og atburðum, sem líklegar eru til að auka hróður Íslands í Vesturheimi og halda á lofti sögu landafundanna.“44 Hugmyndin um höggmyndina af Fyrstu hvítu móðurinni í Ameríku féll þannig einkar vel að áætlun ríkisstjórnarinnar í því skyni sem og að virkja framtak íslensk-kanadíska samfélagsins í að byggja upp þver- þjóðleg tengsl. Áform íslensk-kanadíska samfélagsins voru að veita atbeina verksins í þann farveg að það rammaði ekki einungis inn útrásarstef íslensku landkynningarinnar heldur vekti einnig athygli á þeirra eigin framlagi og tilveru. Íslensk-kanadíska samfélagið gerði því tilkall til þess að verkið ynni ekki eingöngu fyrir íslensk stjórnvöld heldur einnig fyrir sig. Sviðsljós hátíðahaldanna með Ísland í forgrunni skyldi hliðra til, draga fram og minnast 125 ára sögu og tilvistar íslensk-kanadíska samfélagsins innan fjölþjóðamenningar Kanada. Með það í huga stofnuðu leiðtogar íslensk-kanadíska samfélagsins Hátíðanefndina-125 sem vísaði í það að 42 David Gislason, „A Millennium to celebrate“, Lögberg Heimskringla, 22. janúar 1999, bls. 1. 43 nikolas Rose, Powers of Freedom, bls. 49. 44 Endurfundir Íslendinga með íbúum Norður-Ameríku.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.