Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1977, Side 200

Skírnir - 01.01.1977, Side 200
198 RITDÓMAR SKÍRNIR Þessa niðurstöðu fær Bo Almqvist einnig fram í einni athugun sinni á níðinu. Hann leiðir rök að því, að níðið um Þorvald veila sé í uppruna- legastri geymd í Ólafs sögu Tryggvasonar enni mestu. Enda þótt þessi niðurstaða Bo Almqvists sé um margt athyglisverð, ber þó nauðsyn til að skyggna þetta mál nánar. í umræðu sinni gerir Bo ráð fyrir því, að sögnin „að snara" merki „að snúa á annað mál“, „að þýða“. Þessa merkingu hefur umrædd sögn Ifka oft í fornu máli og langoftast á síðari tímum, þegar hún kemur fyrir f sambandi við bækur eða rit. En annarri merkingu bregður þó fyrir. 1 útgáfu Bergsbókar árið 1963 dregur Gustaf Lindblad fram dæmi um það, að sögnin að snara merki „að draga saman" (sammenskrive), í heimild frá um 1650, og í annarri frá 18. öld er talað um að snara bók saman úr annarri bók. Þá hefur Peter Foote einnig bent á, að Bergur ábóti muni sjálfur hafa notað sögnina að snara um að draga saman efni úr öðrum bókum. Sé síðarnefndu merkingunni til að dreifa í upphafi Bergsbókar, gæti verið um það eitt að ræða, að Bergur ábóti hefði tekið saman nýja gerð af Ólafs sögu Tryggvasonar enni mestu. Er það að líkindum sennilegasta skýringin á orðum Bergsbókar. Hitt er svo annað mál, að við vitum lítið um hverjar heimildir hafa verið tiltækar Bergi ábóta. Gæti þvf þrátt fyrir allt vel verið rétt sú niðurstaða Bo Almqvists, að Ólafs saga Tryggvasonar en mesta sé á köflum jafngóð eða betri heimild en Kristni saga. Tengsl Njáls sögu og áðurnefndra rita tekur Bo sfðan til meðferðar og einn- ig þar þokar hann rannsókninni fram um skref. Er niðurstaða hans um þetta efni sú, að svo framarlega sem níðvísurnar í fyrrnefndu ritunum tveimur reki rætur til rits Gunnlaugs, þá hljóti Njáls saga einnig að gera það. Leiðir hann sterk rök að þessari niðurstöðu. Meginniðurstaða Bo Almqvists um níðið gegn trúboðunum er sú, að það hafi verið gætt töframætti, auk þeirrar viðurstyggðar, sem þar birtist. Þannig hafi níðið gegn trúboðunum verið undanfari ákvæðaskáldskapar síðari alda. I kaflanum um níðgeymdir síðmiðalda fjallar Bo um níð Skáld-Helga í samnefndum rfmum og einnig um níðkveðskap, sem eignaður er bróður Eysteini. Er niðurstaðan af rannsókn þessa níðs mjög á sömu lund og hin fyrri. Eysteini er lýst sem hreinræktuðu kraftaskáldi, sem bæði getur valdið beinu tjóni með kveðskap sfnum og bjargað sér með honum og hið sama verður uppi á teningnum hvað níð Skáld-Helga varðar. Hefur níðgeymdin þar með verið rakin alla leið, allt frá elstu sögnum um níð gegn þjóðhöfð- ingjum og allar götur langleiðina til ákvæðaskálda síðari tíma. Er þess nú að vænta, að senn birtist þriðja bindið í þessu safni, bindi sem margir fs- lenskir lesendur bfða áreiðanlega með eftirvæntingu. I endurlitskafla bókarinnar dregur Bo saman f stuttu máli helstu niður- stöður rannsóknar sinnar á níðinu. Eru þær f meginatriðum að níð og galdur hafi oft farið saman og ef til vill megi ætla öllu níði á tímabilinu frá 900 til 1300 galdursverkanir. í elstu textum megi sjá beint samband á milli nfðsins og trúar á guði og vætti, sem níðskáldin eggi eða þvingi til
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.