Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1963, Page 90
1963
88 —
19. Hettusótt (089 parotitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 19.
1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963
Sjúkl. 434 5977 176 25 13 27 135 1684 2144 564
Dánir 99 1 1 99 99 99 99 99 99 99
Framan af árinu var slangur af hettusótt, framhald af faraldri, sem
var á gangi 2 undanfarin ár. Veikin er skráð í 29 héruðum, en í sumum
aðeins örfá tilfelli.
Stykkishólms. Faraldur sá, sem gekk hér á fyrra ári, dó út um ára-
mót.
Þórshafnar. Barst hingað í janúar. Orchitis sem fylgikvilla fengu
fjórir.
Austur-Egilssta&a. Faraldur byrjaði seint á árinu 1962 og gekk fyrri
árshelming 1963. Hann náði mestri útbreiðslu í Hjaltastaða- og Eiða-
þinghám, ekki sízt vegna nemendaskiptanna í barnaskólanum á Eiðum,
en þau eru á 2ja vikna fresti.
Búða. Stakk sér niður fyrstu mánuði ársins; framhald faraldurs
fyrra árs.
Laugarás. Hettusótt í ársbyrjun.
Hafnarfj. örfá tilfelli á fyrstu mánuðum ársins, einnig leifar fyrra
árs faraldurs.
Kópavogs. Byrjaði í janúar, flest tilfelli í marz, ekki vart fylgikvilla.
20. Blöðrubóla ungbarna (766 pemphigus neonatorum).
Töflur II, III og IV, 20.
1962 1963
Sjúkl................... 27 17
21. Lungnabólga (pneumonia).
Töflur II, III og IV, 21a og b.
a. Kveflungnabólga (491 pn. catarrhalis).
1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963
Sjúkl. 2650 1488 1099 800 895 1909 1693 1505 1602 1513
b. Taksótt (490 pn. crouposa).
1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963
Sjúkl. 231 188 128 87 94 123 143 141 112 89
Dánir alls 77 89 72 47 100 94 60 94 71 71
Fjöldi taksóttartilfella er nú með færra móti. Læknar hafa ekkert sér-
stakt um veikina að segja.