Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1963, Page 96
1963
— 94
Skýrsla berklayfirlæknis.
Árið 1963 voru framkvæmdar berklarannsóknir, aðallega röntgen-
rannsóknir í 16 læknishéruðum. Voru alls rannsakaðir 19562 manns, á
6 heilsuverndarstöðvum 18472, aðallega úr 8 læknishéruðum (berkla-
rannsóknir í Hafnarfirði og Kópavogi eru stöðugt framkvæmdar af
Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík), en með ferðaröntgentækjum 1090
manns, aðallega úr 8 læknishéruðum. Fjöldi rannsókna er hins vegar
nokkru meiri, þar sem margir koma oftar en einu sinni, einkum á
stöðvarnar. Námu þær alls 21778.
Að þessu sinni fór fram heildarrannsókn á íbúum Blönduósskaup-
túns vegna berklasmitunar, sem þar kom upp. Ennfremur var þá einnig
rannsakað margt manna úr héraðinu utan kauptúnsins, eða alls í hér-
aðinu 569 manns. Þrír sjúklingar fundust með virka berklaveiki við
rannsóknina. Einn þeirra var áður óþekktur.
Árangur rannsókna heilsuverndarstöðva er greindur sérstaklega
(sbr. bls. 126). Af 1090, sem rannsakaðir voru með litlum ferðarönt-
gentækjum í 8 læknishéruðum, fundust að þessu sinni 3 sjúklingar með
virka berklaveiki (áðurnefndir sjúklingar í rannsókninni á Blönduósi),
eða 2,8%0 hinna rannsökuðu.
3. ígulmygla (actinomycosis).
1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963
Sjúkl. » 1 3 1 » » 1 2 2 1
Dánir » » » » » » » » » »
4. Holdsveiki (lepra).
1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963
Á spítala 6 5 5 6 5 5 4 4 3 3
1 héruðum 2 2 2 2 » » » » n »
Samtals 8 7 7 8 5 5 4 4 3 3
5. Sullaveiki (echinococcosis).
1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963
Sjúkl. 4 4 4 4 3 1 3 1 » »
Dánir » 1 1 4 2 » 1 » 2 1
Sullaveiki hefur nú verið felld niður af mánaðarskrám. Á árinu er 1
talinn dáinn úr veikinni. Á ársyfirliti um sullaveiki eru greindir 9 sulla-
veikir í 6 héruðum.