Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1963, Page 120
1963
— 118
Eskifj. Aðsókn svo mikil, að erfitt hefur reynzt að fullnægja nauð-
synlegustu þörfum. Hefur vaxið úr hófi fram. Aðstaða til frumstæð-
ustu læknisaðgerða engin.
Hafnar. Ferðir 203, ca. 10 þús. km. Aðsókn að lækni með mesta
móti.
C. Aðrir heilbrigðisstarfsmenn.
1. Tannlæknar og tannsmiðir.
Tannlæknar, sem hafa tannlækningaleyfi á Islandi, töldust 74 í árs-
lok. Af þeim voru búsettir og starfandi í Reykjavík 44 (búsettir 48),
búsettir í öðrum kaupstöðum 12, utan kaupstaða 2, erlendis 11 og án
fasts aðseturs (bráðabirgðastörf erlendis) 1. Starfandi tannlæknar
töldust 58 alls. Tannsmiðir, sem teljast stunda sjálfstæða atvinnu, eru 3.
Tannlækningaleyfi (takmarkað lækningaleyfi) veitt á árinu:
Kristján Hörður Ingólfsson (22. marz).
Ríkharður Pálsson (22. marz).
2. Sjúkraþjálfarar.
Sjúkraþjálfarar, sem hlotið hafa leyfi til starfs síns, eru taldir 25 í
árslok. 13 eru búsettir í Reykjavík, 7 í öðrum kaupstöðum og 5 utan
kaupstaða. Ekkert þess háttar leyfi var veitt á árinu.
3. Hjúkrunarkonur.
Starfandi hjúkrunarkonur eru taldar 310 í árslok. 214 störfuðu í
Reykjavík, 84 í öðrum kaupstöðum og 12 utan kaupstaða. Hjúkrunarnem-
ar voru 101. Samkvæmt þessu voru 603 íbúar um hverja starfandi
hjúkrunarkonu.
U. Ljósmæður.
Skipaðar Ijósmæður eru taldar 116 í árslok, en aðrar starfandi ljós-
mæður voru 50. Búsettar í Reykjavík voru 37.
5. Dýralæknar og dýralækningar.
Dýralæknar með dýralæknaprófi voru alls 18 í árslok (17 starfandi).
Af þeim voru 13 héraðsdýralæknar.
XI. Heilbrigðisstofnanir.
A. Sjúkrahús.
Tafla XVII.
Tafla XVII, um sjúkrahús, hefur nú verið umsamin og farið eftir
skiptingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í World Health Statis-