Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1963, Page 126
1963
— 124 —
C. Blóðbankinn.
Engin skýrsla barst fyrir þetta ár.
D. Tilraunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum.
Ur ársskýrslu tilraunastöðvarinnar.
Bólusetning gegn mislingum:
Lokið hefur verið við að vinna úr þeim gögnum, sem safnað var um
árangur mislingabólusetningarinnar, sem fór fram á vegum Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar hér á landi 1962. Heildaryfirlit um þessa
vinnu hefur verið sent til birtingar í The Bulletin of WHO, en bráða-
birgðayfirlit um rannsóknir þessar hafði áður verið birt í The Lancet
(23-2-1963). Allar þessar rannsóknir hvíldu á herðum Margrétar Guðna-
dóttur.
Inflúenza:
1 febrúar 1963 barst inflúenza til landsins. Veikinnar varð einna
fyrst vart á Elliheimilinu Grund í Reykjavík. Veiktist þar bæði vist-
fólk og starfsfólk. Voru þegar í byrjun tekin hálsskolvötn og blóðsýni
frá nokkrum sjúklingum. Einnig voru tekin hálsskolvötn úr nokkrum
sjúklingum annars staðar, þar sem náðist til í byrjun faraldursins. Úr
þessum hálsskolvötnum ræktuðust inflúenzuveirur, sem allar reyndust
vera af A2 stofni. Mælingar mótefna í blóði sjúklinga staðfestu niður-
stöður ræktunartilraunanna. Sjúklingarnir sýndu hækkandi mótefni
fyrir A2 stofnum af inflúenzu.
Q-fever:
Eins og um var getið í síðustu ársskýrslu, fundust komplementbind-
andi mótefni gegn Q-fever í blóði tveggja sjúklinga á barnadeild
Landspítalans. Því hafa nokkur blóðsýni verið athuguð með tilliti til
þessara mótefna, þegar um atypiskar lungnabólgur hefur verið að
ræða. Alls hafa 42 sýni verið rannsökuð, og voru sýni frá 5 sjúklingum
jákvæð og eitt grunsamlegt.
Fýtapest (psittacosis):
1 nóvember 1963 bað Eiríkur Björnsson, læknir í Hafnarfirði, um
að rannsakað yrði blóð úr 14 ára dreng af Álftanesi, sem hafði verið
subfebril um tíma. Hafði drengur þessi fengizt mikið við dúfnarækt og
misst töluvert af dúfum úr einhverju fári. 1 blóði drengsins fundust
komplementbindandi mótefni gegn psittacosis-antigeni. Blóðsýni úr
þremur dúfum úr búi drengsins voru rannsökuð, og reyndist eitt af