Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1963, Page 144
1963
— 142 —
Neyzluvatn er hér með ágætum og má heita algerlega laust við alla
sýkla. Þrifnaður utanhúss er víðast hvar sæmilegur. í þjónustu bæjar-
ins er sérstakur meindýraeyðir. Undantekningu má það telja, að rotta
sjáist í bænum, enda er eitrað fyrir rottur að minnsta kosti tvisvar
á ári.
Grenivíkur. Húsakynni manna virðast nú allsæmileg og þrifnaður
í allgóðu lagi.
Þórshafnar. Neyzluvatn er lélegt að gæðum og hvergi nærri nóg að
magni, þegar neyzla þess er mest. Þrifnaður utanhúss hefur batnað
mjög. Hreppurinn sér um sorphreinsun, og sorptunnur eiga að vera
við hvert hús. Fegrunarfélag var stofnað á árinu.
Norður-Egilsstaða. Víðast hvar eru íveruhús góð og upphitun næg.
Umgengni er mjög misjöfn. Rottur eru víða og ekki gerð nægileg gang-
skör að því að útrýma þeim. Lús mun ekki með öllu útdauð í héraðinu.
Austur-Egilsstaóa. Ibúar Egilsstaðakauptúns verða enn að láta sér
nægja bragðvont og oftast gruggugt neyzluvatn. Er nú bráðum 1 ár,
síðan skurðir voru grafnir bæði fyrir nýjar vatns- og skólpleiðslur, og
hefur um sinn verið látið þar við sitja.
Eskifj. Ný vatnsleiðsla tekin í notkun á Eskifirði. Þrifnaður fer
heldur batnandi. Mikið um nýbyggingar á Eskifirði og Reyðarfirði
samfara vaxandi velmegun.
Djúpavogs. Hafnar framkvæmdir við vatnsveitu fyrir Djúpavogs-
kauptún.
Víkur. Húsakynni eru sums staðar með afbrigðum léleg og þrifnaði
ábótavant á einum 4 bæjum, sem ég þekki til.
Laugarás. Nokkrar íbúðir í héraðinu má hiklaust telja heilsuspillandi
húsnæði. Frárennsliskerfi mikið í smíðum á Laugarvatni. Mun það
bæta úr vandræðaástandi. Víða í sveitinni mun vera mjög ófullkominn
frágangur á afrennsli.
Hafnarfj. Heilbrigðisfulltrúi ásamt héraðslækni leit eftir þrifnaði
í bænum utanhúss. Nokkrar íbúðir voru skoðaðar vegna kvartana. Enn-
fremur var litið eftir vatnsbóli bæjarins og sorphreinsun. Sorpi öllu
er varpað í sjóinn alllangt frá bænum, og hefur það gefizt furðuvel.
Nokkrum erfiðleikum valda þó mjólkurhyrnurnar, sem berast nokkuð
út frá staðnum meðfram ströndinni.
Kópavogs. Talsverður vatnsskortur hefur verið sums staðar í bæn-
um. Verður bætt úr því í svip með dælu, en fyrirhugað er að byggja
vatnsgeymi til frekara öryggis. Frárennsli er eitt mesta vandamálið.
3. Sullaveikivarnir.
ólafsvíkur. Hundahreinsun fer fram í 3 hreppum. I Ólafsvíkur-
hreppi er hundahald bannað, og fjáreign minnkar. Sullaveiki hefur ekki
orðið vart, né hef ég orðið var sulla í sauðfé.
Stykkishólms. Eins og getið er um í síðustu ársskýrslum, var sulla-