Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1963, Page 149
— 147 —
1963
þessar því ekki rétta hugmynd um gæði neyzluvara almennt. Sýnis-
hornin eru rannsökuð í Rannsóknarstofu Háskólans, gerlarannsóknar-
stofu Fiskifélags lslands, Atvinnudeild Háskólans og eftir atvikum í
Öðrum rannsóknarstofum. Það skal tekið fram, að í sýnishornum neyzlu-
vatns í töflu II eru aðeins talin þau, sem tekin voru á vegum heil-
brigðiseftirlitsins. Eftir kröfu heilbrigðiseftirlitsins var matvælum
eytt á árinu sem hér segir:
Kjöt ...................... 6475 kg
Fíkjur ..................... 290 —
Kæfa ....................... 339 —
Súkkulaðikex ............... 114 —
Ýmsar matvörur ............. 210 —
Samtals 7428 kg
Á árinu bárust heilbrigðiseftirlitinu 155 kvartanir. Tilefni þeirra
skiptist í þessa höfuðflokka:
Meðferð matvæla o. fl............ 36
Óþrifnaður á lóðum og lendum,
rottugangur ..................... 40
ólykt, reykur, hávaði ........... 19
Frárennsli ...................... 25
Heilbrigðisástand á vinnustöðum 13
Ibúðarhúsnæði .................... 3
Skordýr .......................... 4
Ýmislegt ........................ 15
Samtals 155
Reykhóla. Lét kasta nokkru af niðurlögðum sjólaxi úr kaupfélaginu
vegna gerjunar og tæringar á dósum. Næsta sending var eins og fór
sömu leið. Nokkru kastað af ávöxtum og eplamauki, sem ætlað var ung-
börnum. Innihélt óhemju af gersveppum og yfir 10% alkóhól.
Patreksfj. Fylgzt með sölu og dreifingu matvæla hér á staðnum.
Kjötskoðun fór nú í fyrsta skipti fram við sláturhúsin í héraðinu, og
sendi yfirdýralæknir sérstakan mann þar til. Komst hann ekki yfir að
skoða á öllum stöðunum, og má af því sjá, hvaða vit er í því að ætla að
bæta þessu starfi við önnur störf héraðslækna, svo sem verið hefur.
Akureyrar. Heilbrigðisfulltrúi tekur við og við matvæla- og vatns-
sýnishorn og sendir Atvinnudeild Háskólans í Reykjavík til rannsóknar.
Laugarás. Matvælaeftirlit er ekkert, utan skoðun dýralækna í slátur-
húsum og eftirlit þeirra og starfsmanna MB í fjósum og mjólkureftir-
lit búsins við móttöku afurðanna.